almenn hegningarlög.
Virðulegur forseti. Mig langar fyrst að nefna hér ágæta ræðu hv. þm. Helgu Völu Helgadóttur, sem fór mjög vel yfir það í nokkuð ítarlegu máli hversu mörg álitaefni eru á þessum snertifleti tjáningarfrelsis og friðhelgi fólks fyrir hatursorðræðu. Þetta er spurning um grundvallarréttindi sem togast á. Það vekur greinilega mikil viðbrögð þegar fólki þykir stefna í ranga átt, sem endurspeglast í því að við erum nú þegar búin að fá ansi ítarlegar umsagnir frá nokkrum aðilum sem láta sig málið varða, eins og t.d. Samtökunum '78. Það eru viðbrögð sem við eigum að hlusta á.
Við eigum að hlusta bæði á talsmenn þeirra hópa sem verða fyrir fordómum í samfélaginu og við eigum að hlusta á, eins og hér var nefnt, fólkið sem vinnur á gólfinu, sem hefur reynslu af því að beita lögunum sem við höfum haft og hefur mögulega einhverja aðra sýn á það hvernig við eigum að breyta þeim lögum til að þau nái betur fram þeim markmiðum sem við viljum ná fram.
Þar var nefnd Eyrún Eyþórsdóttir sem um nokkurt árabil rannsakað í hatursglæpi innan lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og þar er reynslubanki sem ég held að allsherjar- og menntamálanefnd ætti að leita mjög mikið í.
Þetta er ákveðið reiptog á milli ólíkra grundvallarréttinda sem allsherjar- og menntamálanefnd þarf að skoða nokkuð ítarlega, myndi ég halda, til að við náum þeim markmiðum sem við viljum ná út úr þessu. Ég held við þurfum jafnframt að skoða hvaða hópar falla hér undir.
Hér nefndi hv. þm. Helga Vala Helgadóttir að vernd fatlaðra og aldraðra hefði komið til umræðu í nágrannalöndum okkar. Svo er hægt að benda á lög sem samþykkt voru á síðasta ári um jafna meðferð á vinnumarkaði þar sem upptalning mismununarbreyta er önnur en í þessu hegningarlagaákvæði. Það er alveg eðlilegt að skoða þetta í samhengi af því að það breytist með tímanum hvað við sem löggjafi teljum vera minnihlutahópa sem eiga undir högg að sækja í samfélaginu. Þegar 233. gr. a kom inn í hegningarlögin vorum við mögulega með annan skilning á þessum málum en á síðasta ári þegar við samþykktum lög um jafna meðferð á vinnumarkaði.
Ég má til með að nefna frumvarp sem flutt er af Unu Hildardóttur, varaþingmanni Vinstri grænna, ásamt þeim sem hér stendur og nokkrum öðrum um að bæta við orðunum kyntjáningu, kyneinkennum og kynvitund í 233. gr. a í hegningarlögum. Það er nokkuð sem við ættum að skoða af fullri alvöru í allsherjar- og menntamálanefnd þannig að við náum betur utan um sviðið.
Síðan er það hópur sem á kannski ekki heima í þessu ákvæði, ég veit það ekki, en við þurfum einhvern veginn að fara að takast á við, það eru konur, hálf þjóðin, fyrst við erum að tala um ummælakerfi samfélagsmiðla og hina frjálsu tjáningu fólks í almenna rýminu þá er sú tjáning önnur gagnvart konum en körlum, alla jafna, hún er harðari og óvægnari. Kannski fellur hún ekki undir hatursorðræðuákvæðið en við þurfum að finna einhverja leið til að koma böndum á þetta.
Það er sama hvaða hóp er um að ræða, það er sama hversu alvarleg ummælin eru, hatrið er til staðar. Þá er það smitsjúkdómur sem breiðist út. Og ef hann fær að vera ómeðhöndlaður í samfélaginu of lengi, ef ekki er tekið á ummælum þannig að samfélagið læri að hætta að beita hatri þegar það tjáir sig, þá náum við ekki fram þeim markmiðum sem við viljum ná.
Ég sé að við í allsherjar- og menntamálanefnd höfum ærið verkefni fyrir höndum til að ná utan um þau mikilvægu sjónarmið sem hér eru undir og lýsi mig nokkuð spenntan að takast á við það af því að þetta eru ákvæði sem skipta miklu máli og við þurfum að vanda okkur við.