149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

almenn hegningarlög.

543. mál
[12:09]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmönnum sem tekið hafa þátt í umræðu um þetta athyglisverða mál, ég leyfi mér að halda því fram að það sé athyglisvert og þarfnist mikillar umræðu. Ég á ekki von á öðru en að það fái hér mjög góða þinglega meðferð í þinginu. Það er svo sem ekki í fyrsta skipti sem mál af þessum toga kemur fyrir þingið. Tjáningarfrelsið og mörk þess hafa auðvitað verið rædd hér af og til í gegnum árin, kannski ekki síst hin síðari ár. Við lifum breytta tíma frá því sem áður var. Allir hafa fengið rödd og ég held að flestir fagni hinni nýju tækni sem gerir öllum kleift að tjá sig hvar og hvenær sem er. En á sama tíma hefur orðið þróun sem mér finnst svolítið umhugsunarverð en líka neikvæð, þ.e. að á sama tíma fer þolinmæði fólks fyrir skoðunum annarra þverrandi. Mér finnst það áhyggjuefni. Það er kannski einmitt í því ljósi sem þingið samþykkti hér, reyndar á árinu 2010, þingsályktun um að fela stjórnvöldum að leitast við að gera Ísland að forgöngulandi þegar kemur að tjáningarfrelsi. Í kjölfarið var sett af stað vinna hjá stjórnvöldum víðs vegar í stjórnkerfinu til að skoða þessi mál heildstætt. Þótt ég hafi í sjálfu sér enga skoðun á þessari þingsályktun til eða frá er ég ekkert endilega sammála því að það eigi að vera sérstakt markmið að Ísland skeri sig úr frá öðrum löndum að því hvað varðar vernd, t.d. æru manna og þess háttar, en árið 2010 fór sú vinna hins vegar af stað.

Ég vil nefna það í umræðunni, af því að menn hafa verið að velta fyrir sér tilurð þessa frumvarps, að í kjölfarið setti þáverandi menntamálaráðherra af stað hóp sem skoðaði þessi mál mjög ítarlega. Hópurinn samanstóð m.a. af blaðamönnum, fræðimönnum og þingmönnum. Niðurstaða hópsins var að breyta þyrfti þeirri grein sem um ræðir í þessu máli, 233. gr. a hegningarlaga, í þágu tjáningarfrelsis. Það var tillaga hópsins.

Á síðasta ári skipaði núverandi forsætisráðherra starfshóp til þess að skoða tjáningarfrelsi í enn víðara samhengi. Þar var þessi lagagrein til umræðu hjá hópi sem samanstóð m.a. af prófessor í lögum við Háskóla Íslands, fulltrúa frá Blaðamannafélagi Íslands, lögmönnum og öðrum sérfræðingum á sviði mannréttinda. Það var líka niðurstaða hópsins að 233. gr. a hegningarlaga mætti vel við því að verða endurskoðuð. Hópurinn lagði reyndar til þá lagabreytingu sem liggur fyrir þinginu, þ.e. lagabreytingu með þessum hætti. Það er örlítið önnur útfærsla en fyrri starfshópurinn, sem ég nefndi áðan, sem var á vegum menntamálaráðuneytisins fyrir nokkrum árum, komst að niðurstöðu um. En allt að einu er sjónarmiðið það sama, að menn þurfa að huga að því að tjáningarfrelsinu sé ekki sniðinn það þröngur stakkur að menn veigri sér við að setja fram skoðanir sínar, sem kunna jafnvel að vera hörmulegar, ömurlegar, leiðandi og mögulega meiðandi fyrir einhverja, að mönnum sé a.m.k. ekki gerð refsing fyrir slíkt.

Tjáningarfrelsið er grundvallarmannréttindi sem ég held að örugglega allir á Íslandi séu sammála um að standa eigi vörð um. Það er ekki þannig í öllum löndum. Í mörgum löndum er tjáningarfrelsið fótum troðið. Tjáningarfrelsi er grundvallarmannréttindi og það er ekki bara svo að menn standi vörð um sjónarmið sem falla í góðan jarðveg, það snýst líka um að standa vörð um að menn geti sagt það sem þeir vilja segja og haft sjónarmið og sett þau fram í þjóðfélagsumræðu þótt þau falli í grýttan jarðveg. Það er þá hinna sem hafa önnur sjónarmið að taka þátt í þeirri umræðu og ræða þau. Það er ekkert markmið í sjálfu sér að standa vörð um tjáningarfrelsið, það getur auðvitað verið það, en tjáningarfrelsið er líka hreyfiafl. Það er forsenda framfara að setja fram sjónarmið og skoðanir.

Ég hef heyrt baráttufólk fyrir réttindum samkynhneigðra í Bandaríkjunum, t.d. á 7. og 8. áratugnum, benda á að það hefði ekki verið þeirra málstað til framdráttar að loka fyrir umræðu sem þessa. Þannig hefur meiðandi umræða um tiltekna þjóðfélagshópa oft verið hreyfiafl til framfara. Menn mega ekki líta fram hjá því.

Fram kom í máli eins hv. þingmanns að tilgangurinn með ákvæðum sem kveða í kútinn einhverja umræðu væri að sporna gegn fordómum. Ég efast mjög stórlega um að spornað sé gegn fordómum með því að bæla niður umræðu, hversu vitlaus sem hún kann að vera, heldur oft þvert á móti, eins og ég nefndi áðan.

Ég vil að lokum segja að ég er með þessu frumvarpi, og er það afstaða mín og alveg örugglega allra þeirra sem hafa komið að því, að skoða þessi mál í samhengi við tjáningarfrelsið og vernd manna til einkalífs, sem við þurfum líka að standa vörð um. Meiðandi ummæli geta gengið gegn einkalífi manna, en með lagabreytingu sem þessari er ekki með neinum hætti verið að hvetja til óvandaðrar umræðu eða gera lítið úr hversu meiðandi hún kann að vera. Um leið er þetta kannski tilefni til að hvetja menn til vandaðrar umræðu, til hófstilltrar og málefnalegrar umræðu, og menn eiga að nota það til þess. Þótt fram komi í einum hæstaréttardómnum sem hér hefur verið til umfjöllunar, og fullyrt að viðkomandi hefði getað hagað orðum sínum með öðrum hætti, og flest getum við það, er líka til fólk sem getur það ekki, sem getur ekki hagað orðum sínum eins og við í þessum sal reynum nú að gera alla jafna.

Það þarf því að taka tillit til ýmissa sjónarmiða og ég vænti þess að hv. allsherjar- og menntamálanefnd geri það. Ég hlakka til góðs samstarfs við þingið um þetta mál.