149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

almenn hegningarlög.

543. mál
[12:19]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég nefndi þá skoðun mína að þolinmæði manna fyrir skoðunum annarra færi þverrandi. Það gengur í ýmsar áttir og allar áttir, virðist vera. Geðshræring grípur um sig á samfélagsmiðlum. Ef einn setur fram fráleita skoðun er enginn hörgull á enn þá fráleitari skoðunum til þess að reyna að blása hana. Við þekkjum öll hvernig það virkar. Ég nefni þetta bara svona almennt, ekki sérstaklega út af þessu ákvæði. Og ég er ekki að vísa til þess að þetta ákvæði sé sérstakt skoðanaákvæði. Það er alveg ljóst hvernig það er orðað. Ég nefndi í framsöguræðu minni að upphaflega var þetta ákvæði þannig orðað: „Hver sem ræðst að hópi manna eða mönnum …“ Það var fellt út og nú er það orðað þannig: „Hver sem hæðist að eða fjallar um …“ hvernig sem það nú er.

Þannig að orðalagið á þessu ákvæði hefur tekið nokkrum breytingum, sem sýnir kannski líka að löggjafinn er í svolitlum vanda staddur þegar kemur að túlkun á þessu orði og þessu ákvæði og markmiðum ákvæðisins. Það er alveg ljóst í mínum huga, eins og ég hef nefnt hér, að friðhelgi einkalífsins er vernduð. Undir hana fellur t.d. æra manna og jafnvel staða manna, af því að það lýtur þeim þáttum sem þarna koma fram, þannig að við þurfum ekki að deila um það, hv. þingmaður og ég. En þarna kunna hins vegar stundum að vegast á sjónarmiðin um tjáningarfrelsið og menn þurfa að fara varlega í að takmarka það með þeim hætti eins og menn margir vildu sjá í umræðunni sem oft sprettur upp vegna skorti á umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra.