149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

almenn hegningarlög.

543. mál
[12:24]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég man nú ekki hvorum dómnum — það var vísað til þess sem hv. þingmaður er að vísa til og er vísað til í frumvarpinu. Vissulega eru þetta ömurlega ummæli sem þarna voru látin falla og líka í sjálfu sér í þriðja málinu þar sem þó var sýknað. Í einhverjum af þessum dómum var komist svo að orði að viðkomandi hefði getað komið þessum sjónarmiðum sínum á framfæri með öðrum hætti.

Þá veltir maður fyrir sér: Hvað er það sem er til þess fallið að valda fordómum? Hefði það verið miklu betra ef menn hefðu getað sett þessar skoðanir sínar fram á sómasamlegan hátt, með orðalagi embættismanna eða þeirra sem eru vanir að tjá sig í ræðu og riti? Eða eru það sjónarmiðin sjálf sem menn eru mótfallnir? Mér heyrðist það vera þannig hjá hv. þingmanni.

Ég velti því fyrir mér hvort sé betra fyrir umræðuna í landinu að menn gangi hreint til verks þannig að hægt sé að átta sig á þeim fordómum sem liggja að baki þessum ummælum eða hvort menn vilji hafa þetta allt í kansellístíl í orðræðu sem tapast og menn ná engum fókus á hver raunveruleg afstaða manna er. Hv. þingmaður og ég erum sammála um að þessi ummæli, þessar skoðanir líka, eru fráleit. Það breytir því ekki að þingið þarf að taka afstöðu til þess hvort það sé tilbúið til þess að láta það varða refsingu að fólk hafi þessar ömurlegu skoðanir.