149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[12:27]
Horfa

dómsmálaráðherra (Sigríður Á. Andersen) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um helgidagafrið og lögum um 40 stunda vinnuviku. Tilgangur frumvarpsins er fyrst og fremst að auka frelsi manna til athafna allt árið um kring. Lagt er til að fellt verði úr gildi bann við tiltekinni starfsemi á helgidögum. Þá gerir frumvarpið ráð fyrir að upptalning helgidaga þjóðkirkjunnar verði færð yfir í lög um 40 stunda vinnuviku sem frídagar. Áfram verður óheimilt að trufla guðsþjónustu, kirkjulegar athafnir eða annað helgihald með hávaða eða öðru því sem andstætt er helgi viðkomandi athafnar.

Í núgildandi lögum um helgidagafrið er ákveðnum aðilum heimilt að hafa opið á helgidögum, þ.e. opið fyrir þjónustu, svo sem í lyfjabúðum, á bensínstöðvum og í blómaverslunum. Sama gildir um matvöruverslanir með verslunarrými undir 600 m² þar sem a.m.k. 2/3 hlutar veltu þeirrar er rakin til sölu matvæla, drykkjarvöru og tóbaks. Reynslan sýnir að erfitt er að hafa eftirlit með slíku. Lögin eins og þau eru í dag hafa einnig haft í för með sér aukið umstang hjá sýslumönnum dagana í kringum hátíðir.

Á síðustu árum hafa einnig orðið miklar breytingar á íslensku samfélagi, m.a. með fjölgun landsmanna og þá streyma ferðamenn til landsins allt árið um kring og bæði heimamenn og ferðamenn vilja alls kyns afþreyingu og ekki síst á frídögum og stórhátíðum. Hefur Ísland m.a. verið markaðssett sérstaklega sem áfangastaður um hátíðir eins og jól og páska. Frelsi manna til að njóta og veita þjónustu hefur hingað til verið þröngur stakkur sniðinn á hátíðisdögum og þær breytingar á lögum um helgidagafrið sem hér eru lagðar til eru í fullu samræmi, myndi ég halda, við kröfur almennings og atvinnulífs.

Umræða um að endurskoða þurfi lög um helgidagafrið á grundvelli breytinga sem orðið hafa á samfélaginu hefur líka aukist að undanförnu og hafa lögin í sjálfu sér ekki fylgt þróun samfélagsins svo við verði unað. Ekki eru uppi næg rök að mínu mati fyrir þeim takmörkunum sem lögin setja, bæði almenningi og atvinnurekendum. Það er auðvitað ekki þörf á að takmarka frelsi fólks á helgidögum þjóðkirkjunnar með ákvæðum í lögum og er fremur talið nauðsynlegt að draga úr slíkum takmörkunum sem lögin setja ýmsum rekstraraðilum á helgidögum, þannig að unnt sé að koma til móts við þá sem vilja afþreyingu á þeim dögum og vilja njóta eða veita þjónustu. Þess vegna er í frumvarpinu lagt til að afnumin verði takmörkun á atvinnustarfsemi og afþreyingu á grundvelli núgildandi laga um helgidagafrið.

Ég vil í því sambandi nefna að það er með engu móti verið að draga úr vægi helgidagafriðs sem fólki er auðvitað í sjálfsvald sett og að mínu mati allir ættu að halda í heiðri á sínum helgidögum.

Þar sem vinnuverndarsjónarmið tengjast löggjöf um helgidagafrið, m.a. með tilvitnun í helgidaga þjóðkirkjunnar í lögum um 40 stunda vinnuviku, nr. 80/1971, í þeirri viðleitni að tryggja fólki frí frá vinnu á helgidögum er lagt til í frumvarpinu að upptalning á þeim dögum verði áfram í lögum en færist yfir í lög um 40 stunda vinnuviku til að tryggja þá daga áfram sem frídaga launafólks.

Ef ég fer stuttlega yfir helstu breytingar sem lagðar eru til í frumvarpinu er í fyrsta lagi lagt til að felld verði úr lögum um helgidagafrið þau ákvæði sem mæla fyrir um takmarkanir á tilgreindri starfsemi og skemmtunum á helgidögum. Þetta er 2. gr. frumvarpsins. Þar sem sú tillaga gerir ráð fyrir að helgidagar þjóðkirkjunnar verði ekki lengur tilgreindir í lögum er í 1. gr. frumvarpsins, til samræmis við breyttan tilgang laganna, lögð til breyting á 1. gr. þeirra og tekið út ákvæðið um að lögin mæli fyrir um helgidagafrið. Þá stendur eftir að lögin mæli fyrir um verndun helgihalds.

Í 3. gr. frumvarpsins er því að sama skapi lagt til að heiti laganna verði framvegis lög um frið vegna helgihalds, enda verður tilgangur þeirra framvegis að vernda helgihald almennt án tillits til sérstakra helgidaga þjóðkirkjunnar.

Þar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að upptalning á helgidögum þjóðkirkjunnar falli niður úr lögum um helgidagafrið er að síðustu í 5. gr. frumvarpsins lögð til sú breyting á lögum um 40 stunda vinnuviku að helgidagar þjóðkirkjunnar verði allir taldir upp í 1. mgr. 6. gr. þeirra laga sem frídagar, í stað þess að vísa almennt til helgidaga þjóðkirkjunnar í því ákvæði eins og nú er gert.

Það verður auðvitað til framtíðar litið málefni aðila vinnumarkaðarins, launþega, einstaka launþega og einstakra atvinnurekanda, að haga því eins og hentar þeim best í kjarasamningum. Breytingin er líka lögð fram í þeim tilgangi að tryggja áfram vinnuverndarsjónarmið.

Þó er lagt til að fellt verði niður að jóladagur sé helgidagur til klukkan sex að morgni næsta dags en slík tímaskilgreiningu sé óþörf þar sem hún helgaðist af mismunandi takmörkunum á atvinnustarfsemi og skemmtunum á jóladegi og öðrum degi jóla. Það lýsir því kannski hversu flókin útfærsla og framkvæmd á núgildandi lögum var orðin.

Virðulegur forseti. Ég hef gert grein fyrir efni frumvarpsins og legg til að frumvarpinu verði að lokinni umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umr.