149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[12:36]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, mér þykir það enn þá skrýtið að lög um frið vegna helgihalds, eins og þau munu heita, verði væntanlega einhver mesti stubburinn í lagasafninu, ekki nema á að giska 30 orð til þess að ná utan um eitthvað sem ég held að við séum öll sammála um að eigi að vera í lögum. Hér er refsiákvæði í 7. gr. Ef við ætlum að halda sama refsiramma sé ég ekki endilega að þetta þurfi að færast yfir í hegningarlög þó að vissulega megi skoða það. Við eigum, eins og ráðherra nefndi, lög um þjóðkirkjuna.

Ég teldi reyndar réttara að lög um öll trúfélög tækju á þessu og sektarákvæði, eins og er í 7. gr. laga um helgidagafrið — það ætti alveg eins erindi inn í lög um skráð trú- og lífsskoðunarfélög eins og þessi. Þá myndum við líka leysa þann vanda að vera hér með — það er svona varla að maður geti kallað það lög þegar þetta er ekki nema eitt ákvæði. Við verðum víst að segja það. Nei, ég festist alltaf í þessu eftir þessa útstrikun þar sem að 80% af lögum um helgidagafrið eru ýmist felld úr gildi eða færð yfir í önnur lög þá fæ ég ekki séð að við þurfum að hafa sérstök lög utan um restina þegar hægt er að ná sömu markmiðum á öðrum stað í lagasafninu.