149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[13:31]
Horfa

Ólafur Þór Gunnarsson (Vg):

Frú forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hæstv. ráðherra fyrir framsögu í málinu og kynningu á því.

Ég hef aðeins velt fyrir mér þörfinni á frumvarpinu, þörfinni á því uppleggi sem hér er, og get svo sem tekið undir það sem hefur komið fram, að það sé ekki nein sérstök þörf á því að vera með lög sem tiltaka sérstaklega frídaga einhvers tiltekins trúfélags sem slíka í löggjöf. Hins vegar er það a.m.k. einnar messu virði að skoða hvort ekki sé ástæða til að hlusta á varúðarorð verkalýðshreyfingarinnar í þessu sambandi, m.a. með tilliti til þess hvort ekki sé alveg nóg að gert í opnunartímum og öðru. Hvort ekki sé í sjálfu sér bara óþarfi að opna frekar á að vera með, mér liggur við að segja endalausa heimild til að sækja sér vinnuafl á hvaða dögum ársins sem er og á hvaða tímum sólarhringsins sem er.

Ég kýs eiginlega að líta á frumvarpið meira í því samhengi en kannski endilega nákvæmlega það hvort við erum að tala um einhverja tiltekna helgidaga kirkjunnar.

Á hitt er svo einnig að líta — og það er kannski annar meginpunkturinn sem ég vil koma inn á — hvort eitthvert virði sé í því fyrir samfélag að hafa einhverja daga, hvort sem þeir eru sameiginlegir öllum eða bara einstaklingsbundnir, þar sem hreinlega má ekki trufla. Þar sem vinnuveitandi eða atvinnurekstur hefur hreinlega ekki heimild til að trufla viðkomandi.

Að því leyti til má líta á „réttindin“, ef við getum sagt það innan gæsalappa, sem felast í lögum um helgidagafrið sem réttindi vinnandi fólks. Að vísu eru þau enn þá réttindi vinnandi fólks með tilliti til helgidaga þjóðkirkjunnar en við getum alveg breytt því. Við getum alveg breytt því í að það séu réttindi vinnandi fólks með tilliti til þeirra helgidaga sem það sjálft velur eða trú þess mælir fyrir um, ef það á við.

Á sama hátt gætu þeir sem kannski hafa enga sérstaka trú eða tilheyra ekki trúfélagi gætu þá einnig valið að merkja sér einhverja tiltekna daga í árinu þar sem þeir vildu fortakslaust að ekki væri verið að trufla þá. Ég get alveg séð fyrir mér hvaða daga menn gætu valið í slíkt. Menn gæti til að mynda valið afmælisdaga barnanna sinna, svo að maður taki eitt tiltölulega almennt og augljóst dæmi. Einhverjir kynnu að velja þá, aðrir kynnu að velja að þeir vildu aldrei láta trufla sína á jóladag og enn aðrir kynnu að vilja að það mætti alls ekki trufla þá á 17. júní o.s.frv.

Þetta er ekki bara kerskni, frú forseti, sem liggur í þessu heldur líka vangaveltur um að það sé einhvers virði fyrir samfélag að maður geti algerlega verið „friðhelgur“ á einhverjum tímum, gagnvart samfélaginu, gagnvart sínum vinnuveitanda.

Þetta segi ég hafandi unnið í slíkum störfum megnið af starfsævi minni, að vinnuveitandinn átti endalaust veiðirétt á minn tíma af því að ég gegndi þannig starfi. Ég þekki því mjög vel hvernig það er að vera aldrei almennilega í þessari stöðu.

Þess vegna vil ég — og það er kannski aðallega vegna þess að ég er ekki í allsherjar- og menntamálanefnd og mun ekki fjalla um þetta mál þar — beina því til nefndarinnar að velta upp þeim sjónarmiðum, skoða þau og hvort flötur sé á því, annaðhvort innan þessa frumvarps eða með breytingum á því, að gera þetta.

En aftur að lokum, frú forseti, ítreka ég það sem ég sagði í upphafi máls míns að hvetja nefndina einlæglega til að hlusta gaumgæfilega eftir sjónarmiðum verkalýðshreyfingarinnar þegar kemur að þessu máli.