149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[13:37]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Virðulegi forseti. Til að byrja með vil ég þakka fyrir þetta frumvarp, sem er nokkurn veginn nákvæmlega eins og frumvarp Pírata sem var lagt fram á 145. og 148. þingi og liggur nú fyrir þinginu, nema í því frumvarpi er lagt til að lög um helgidagafrið verði afnumin alveg, felld brott.

Eins og kom fram í andsvari hv. þm. Andrésar Inga Jónssonar áðan: Ef maður skoðar það sem er eftir í lögum um helgidagafrið, eða eins og þeim verður breytt núna, um frið vegna helgihalds, er það í raun bara 3. gr. og sektir, sem sagt refsing við brotum á 3. gr., sem fjallar um að það sé „óheimilt að trufla guðsþjónustu, kirkjuathöfn eða annað helgihald með hávaða eða öðru því sem andstætt er helgi viðkomandi athafnar,“ með leyfi forseta, úr 3. gr. um lög um helgidagafrið.

En í greinargerð frumvarpsins þegar það var upprunalega samþykkt á 121. þingi segir, með leyfi forseta:

„Í greininni er að finna almennt ákvæði um að óheimilt sé að trufla guðsþjónustu, kirkjuathöfn eða annað helgihald með hávaða eða öðru sem andstætt kann að vera helgi viðkomandi athafna.“

Í lok þeirrar greinargerðar segir um greinina:

„Oftast má ætla að um sé að ræða hávaðasama háttsemi í grennd við kirkju eða samkomuhús sem truflar trúarlega athöfn. Annað kann og að falla hér undir eðli málsins samkvæmt.“ — Eitthvað annað. Maður veit ekki alveg hvað.

Ég sé satt best að segja ekki tilganginn með því að láta þetta hanga inni því að það er ýmislegt annað í lögum sem gæti náð yfir nákvæmlega það sama.

Svo ég tengi það við málið sem var rétt áðan á dagskrá um rýmkun vegna hatursorðræðu er þarna verið að halda í ákveðna vörn gegn mótmælum, ef maður orðar það þannig.

Ég vil spyrja hæstv. ráðherra: Af hverju var ekki hægt að klára frumvarp Pírata sem hefur verið lagt fram margoft áður og er nokkurn veginn nákvæmlega eins og þetta frumvarp, fyrir utan þetta eina ákvæði sem virðist vera algjörlega óþarft að halda í?