149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[13:40]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir yfirferðina. Við þekkjum það að helgidagar og helgidagafriður er forn menningararfleifð sem m.a. er reist á einum af boðorðunum tíu sem Jesús Kristur bauð að fara eftir en talsverður meiri hluti Íslendinga kýs að telja sig kristinn, eins og við þekkjum.

Flest kristið fólk á Íslandi hefur sameiginlega þá helgidaga sem lögin fjalla um. Ákvæði um helgidaga eiga þannig betur heima í almennum lögum en sérlögum um þjóðkirkjuna. Ég fagna því að tekið var tillit til þessa í athugasemdum frá kirkjuþingi og laganefnd kirkjuþings. Í greinargerð með frumvarpinu segir að kirkjuþing lýsi „yfir almennum stuðningi við markmið frumvarpsins. […] Að loknu samráði og að fengnu áliti kirkjuþings voru gerðar breytingar á frumvarpinu og lagt til að í stað þess að flytja upptalningu á helgidögum þjóðkirkjunnar yfir í þjóðkirkjulög, yrðu þeir helgidagar taldir upp í lögum um 40 stunda vinnuviku til að tryggja enn frekar rétt til frídaga á helgidögum.“

Ég fagna því að tekið var tillit til þessara athugasemda og lýsi ánægju minni með góð vinnubrögð hvað það varðar.

Miðað við gildandi lagaramma finnst mér eðlilegt að horft verði til skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga þegar kemur að lögum um friðhelgi trúarlegra athafna og hliðstæðra athafna almennt. Ég hjó eftir því áðan að hv. þm. Andrés Ingi Jónsson taldi í raun og veru ekki þörf á því að sett yrðu sérstök lög um friðhelgi athafna. Ég er hv. þingmanni ósammála með það. Ég tel að mjög mikilvægt sé að sett verði sérstök lög um friðhelgi athafna, og þá á vegum skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga, þannig að óheimilt sé að trufla guðsþjónustu, kirkjulegar athafnir og athafnir á vegum skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga — tekið verði tillit til allra í þeim efnum — með hávaða eða öðru því sem er andstætt helgi slíkra athafna.

Ég tel þetta nauðsynlegt og fagna því að sú leið verði farin. Að öðru leyti styð ég meginmarkmið frumvarpsins.