helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.
Virðulegur forseti. Ég vildi eiga örstuttan orðastað við hv. þingmann vegna þess að ég held að við séum sammála. Hann sagði áðan að hann væri mér ósammála um það hvort þyrfti sérstök lög um friðhelgi þess rýmis þar sem trúarathafnir eiga sér stað. Við erum nefnilega sammála um það. Ég tel bara dálítið hjákátlegt að það séu sérstök stakstæð lög sem halda utan um það og myndi, held ég, miklu frekar vilja sjá slík ákvæði um að ekki megi raska ró trúarathafna eða athafna skráðra trúar- og lífsskoðunarfélaga einfaldlega í lögum sem fjalla um þau félög frekar en að standa ein og sér. En þetta er spurning um útfærslu af því að ég held að í grunninn séum við sammála um þetta.
Þetta er svona angi af almannafriði, að fólk geti iðkað trú sína eða lífsskoðun í friði og laust undan því að fólk kunni að vilja trufla þær athafnir einhverra hluta vegna. Það sama á svo sem við um ýmsa starfsemi í samfélaginu sem er hlutverk löggjafans og framkvæmdarvaldsins að standa vörð um að fái að starfa án truflunar.
En það eina sem ég set spurningarmerki við er hvort þetta eina ákvæði, 3. gr. laga um helgidagafrið, eigi að standa eftir eins og illa gerður hlutur í stökum lögum eða hvort það myndi ekki bara sóma sér miklu betur í lögum um skráð trúar- og lífsskoðunarfélög.