149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[13:46]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég heyrði alveg að við erum í megindráttum sammála í þessu. Það er rétt hjá hv. þingmanni og kannski hef ég misskilið hann örlítið áðan þegar hann flutti ræðu sína hvað það varðar. Vissulega yrðu þau lög rýr. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. En ég held að mikilvægt sé að þetta verði haft að leiðarljósi, að friðhelgi ríki um þær athafnir. Þá á ég ekki bara við, eins og ég sagði, kristnar athafnir heldur athafnir skráðra trúfélaga og lífsskoðunarfélaga, að öllum sé gert jafnhátt undir höfði hvað það varðar.

Þetta er svona tæknileg útfærsla, það er alveg rétt hjá hv. þingmanni, og sjálfsagt að fara yfir það innan nefndarinnar með hvaða hætti væri best að gera það. Aðalatriðið í mínum huga er að ekki verði fallið frá þessu vegna þess að ég tel nauðsynlegt að hafa þetta inni. Það þjónar í mínum huga mikilvægum tilgangi.

Að öðru leyti þakka ég hv. þingmanni.