helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Birni Leví Gunnarssyni fyrir andsvarið. Við erum náttúrlega í megindráttum ósammála hvað þetta varðar. Ég held að það sé alveg ljóst mál. Mitt sjónarmið er, eins og ég nefndi áðan, að helgidagar og helgidagafriður sé forn menningararfleifð sem ég vil halda í, ég er íhaldssamur hvað það varðar. Við þekkjum það hér á öldum áður að rætt var um svokölluð kirkjugrið. Þetta tengist hinni fornu menningararfleifð að mínu mati og rétt sé að halda í hana, það er þá ekki verið að mismuna einum eða neinum vegna þess að þetta mun þá gilda um öll skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög.
Hv. þingmaður nefndi að þetta væri voða víð skilgreining. Ég er nú ekki alveg kannski að fylgja hv. þingmanni með það, en fyrst og fremst snýst þetta um að óheimilt sé að trufla þessar athafnir. Við gætum t.d. séð fyrir okkur einhverja sem væru gegn einu ákveðnu trúfélagi standa í að mótmæla athöfnum þess trúfélags með einhverjum hætti, með háreysti og öðru slíku sem myndi trufla verulega þá athöfn. Því finnst mér rétt að það séu einhver ákvæði sem banni slíka háttsemi og það gildi þá um öll trúfélög og lífsskoðunarfélög.
Ég tel þetta bara nauðsynlegt svo að viðkomandi trúfélög fái að sinna sínum athöfnum í friði. Það er nú einu sinni þannig að suma þætti þarf að tryggja með lögum.