149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[13:56]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér lög sem eru liður í því að tryggja frelsi einstaklingsins til að veita og sækja þjónustu eða afþreyingu á helgidögum og afnema afskipti ríkisvaldsins af atvinnulífinu hvað það varðar. Ég tek að sjálfsögðu heils hugar undir þau markmið þessara laga og mæli með því að þau fái afgreiðslu í gegnum þingið og í nefndinni.

Ég sit ekki í hv. allsherjar- og menntamálanefnd en hef áður tekið til máls hér til að ræða lög um 40 stunda vinnuviku — gerði það fyrr í vetur, þegar við ræddum breytingu á þeim lögum frá Pírötum, að ég hygg, um að breyta þeim í 38 stunda vinnuviku eða 35. Þegar ég las þau ágætu lög, sem upphaflega eru frá árinu 1971, held ég, komst ég eiginlega að þeirri niðurstöðu að þau væru algerlega óþörf. Það er fátt sem mér hugnast verr en að við séum með lög sem engin þörf er á. Lög um 40 stunda vinnuviku gefa meira og minna, eðlilega, aðilum á vinnumarkaði heimild til að semja um þessa þætti eins og þeim hugnast best. Við ræddum hvort þetta ættu að vera lög um 35 stunda vinnuviku eða 40 stunda vinnuviku eða eitthvað annað en ég segi: Þetta á að sjálfsögðu að vera aðila á markaði að semja um.

Í fyrra sagði hæstv. ráðherra í andsvari að lög um 40 stunda vinnuviku heyrðu ekki undir hennar ráðuneyti. Mig langar að varpa því hér inn í umræðuna að kannski væri ráð að í kjölfarið yrði ráðist í að afnema lög um 40 stunda vinnuviku og ef talið er nauðsynlegt að eitthvað í þeim lögum sé til staðar í lögum — kannski kann það að vera það sem hér er lagt til að flutt sé í þau lög — velti ég fyrir mér hvort það ætti þá kannski frekar heima í einhvers konar vinnuverndarlöggjöf. Við eigum lög um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum. Þar tekur IX. kafli á hvíldartíma, frídögum og hámarksvinnutíma. Kannski væri eðlilegt að nálgast annaðhvort einhverja lögbundna frídaga, hvort sem það eru ákveðnir frídagar sem tengjast menningu okkar og kristilegum gildum, eða þá, eins og hv. þm. Ólafur Þór Gunnarsson nefndi hér áðan, að hverjum manni ætti að vera frjálst að velja sína frídaga. Það væri líka hægt að nálgast hlutina þannig. Ég verð nú að viðurkenna að ég er aðeins of mikil íhaldsmanneskja til að hoppa á þann vagn að óhugsuðu máli.

En mér fannst ég verða að koma þessu á framfæri og mér finnst ástæða til að fjallað verði um það og hvort það ætti kannski heima í nefndaráliti hv. allsherjar- og menntamálanefndar, að því verði beint til velferðarnefndar eða velferðarráðherra, ef hægt er að koma því við, að endurskoða þennan lagabálk sem heyrir undir hann.

Að því sögðu langar mig líka að bæta því við sem ég sagði í ræðunni, þegar við vorum að ræða lög um 40 stunda vinnuviku, að þessir frídagar — þeir standa í lögunum eins og þau eru í dag en bara með vísun í lög um helgidagafrið. Þegar við erum að tala um aðfangadag jóla og gamlársdag — og við teljum fríið frá kl. 13 — segi ég nú bara: Af hverju tökum við ekki bara allan daginn undir sem frídag? (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Er ekki eðlilegt að þeir sem vinna á þeim degi, þótt það sé um morguninn og fram til klukkan eitt, fái greitt eins og um rauðan dag væri að ræða? Flest okkar sem erum í skrifstofustörfum og öðru þurfum ekki að sinna vinnu á þessum degi. Eigum við að segja að þetta sé innlegg mitt inn í kjarabaráttuna? Það væri alla vega ráð að taka þessa daga alla undir.

Þá langar mig líka að nefna umræðuna sem skapast hefur í þessum sal um það hvort 1. desember eigi líka að vera almennur frídagur.