helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur ræðuna. Mig langar að velta því upp að mér fannst þingmaðurinn ekki taka nægilega ákveðið á því sem eru kannski aðaláhyggjuefni mín í sambandi við þetta frumvarp, þ.e. samráð við verkalýðshreyfinguna og áhyggjur verkalýðshreyfingarinnar af lagasetningunni. Hvort þingmaðurinn hafi áhyggjur af því að með því að taka þau skref með þeim hætti sem þarna er gert ráð fyrir, gætum við með einhverju móti verið að rýra réttindi vinnandi fólks og því ástæða til að hnykkja sérstaklega á því með einhverjum hætti í textanum.
Í mínum huga snýst þetta ekki bara um það, og eiginlega allra síst, að auka eitthvert viðskiptafrelsi eða eitthvað þess háttar, heldur snýst þetta að miklu leyti um það að þarna eru tiltekin réttindi sem vinnandi fólk hefur fengið, að vísu í skjóli þess að um er að ræða tengingu við frídaga þjóðkirkjunnar.
En það er ef til vill það sem ég hef einna mestar áhyggjur af. Það kemur fram í greinargerð frumvarpsins að þó að samtök opinberra starfsmanna hafi kannski verið tiltölulega hlutlaus gagnvart þessum breytingum lýsa sérstaklega ASÍ og stéttarfélög á þeim væng a.m.k. áhyggjum og jafnvel andstöðu við breytingarnar, alla vega óbreyttar.