helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og verð að viðurkenna, í ljósi þess að þetta kom ekki inn á mitt borð, að ég er ekki búin að lúslesa það frumvarp sem liggur fyrir en tek heils hugar undir markmið þess.
Þegar ég renni yfir umræður hérna um samráð og þær athugasemdir sem hafa komið hnýt ég um að í greinargerðinni segir, með leyfi forseta:
„Margar athugasemdir frá aðilum vinnumarkaðarins sem velferðarráðuneytið aflaði eru þess eðlis að þær lúta fremur að sjónarmiðum og stefnumörkun almennt hvað varðar málefni vinnumarkaðarins sem heyra málefnalega undir félagsmálaráðuneytið.“
Það er kannski það sem minn punktur snýst fyrst og fremst um. Ég tek undir að við eigum að tryggja frelsi einstaklingsins til að veita og sækja þjónustu eða afþreyingu á helgidögum og í rauninni það afnám sem felst í þeim greinum í lögum um helgidagafriðinn.
Það sem ég staldra við sérstaklega er breyting á lögum um 40 stunda vinnuviku. Mér þykja þær áhyggjur sem hafa komið fram frá verkalýðsfélögum lúta frekar að því að við horfum almennt á vinnuverndarlöggjöfina, hvort við eigum að hafa sérstaka frídaga, hvers eðlis þeir eru, hvort farin verði sú leið sem hv. þingmaður nefndi áðan í ræðu, eða hvort þeir séu niðurnjörvaðar sem þeir dagar sem við þekkjum hingað til.
Mér finnst það í rauninni svolítið önnur umræða og ætti þar af leiðandi frekar að takast á þeim vettvangi þar sem við værum að fjalla um einhverja heildstæða löggjöf er lýtur að vinnumarkaðnum.