helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.
Frú forseti. Ég þakka þingmanninum svarið. Mig langar í seinna andsvari að víkja aðeins aftur að því sem hún nefndi ögn undir lok svars síns, þ.e. þessu með frídagana. Hún kom inn á það áðan að sleppa öllum akkerum og hætta bara að halda upp á einhverja tiltekna frídaga þjóðkirkjunnar. Ég er persónulega ekki þar. (Gripið fram í.)
Hins vegar virði ég rétt þeirra sem kynnu að vilja velja sér aðra daga, einhver önnur trúfélög sem kynnu að vilja velja aðra daga, eða einhverjir sem eru ekki í trúfélögum. Þeir gætu valið sér að vera með einhverja allt aðra daga.
Ég geri ráð fyrir að tilteknir dagar á dagatalinu verði áfram rauðmerktir. Ég er ekki að mæla á móti því. Athugasemd mín átti við um þá daga sem eru í dag heilagastir af öllu heilögu, innan gæsalappa, þ.e. dagarnir þar sem má í rauninni ekki trufla þig eða á í rauninni ekki að reyna að trufla þig. Menn gætu kannski haft svolítið val um það hvaða daga þeir veldu undir það.