149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

helgidagafriður og 40 stunda vinnuvika.

549. mál
[14:11]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er glöð að heyra að við erum bæði svolítið íhaldssöm og viljum halda í heiðri þá merku daga sem við höfum hingað til haldið helga og byggjast margir hverjir, en þó alls ekki allir, á kristinni trú. Ég er glöð að heyra að við séum enn að tala um þá sem rauða daga og held að það sé bara eðlilegt.

En hvort aðilar geti samið um að gera í rauninni aðra daga að sínum helgidögum og verða þá ekki truflaðir af vinnuveitanda og eiga frí stóð ég í þeirri meiningu að það væri hægt í samningum aðila. Ef svo er ekki fyndist mér að það ætti að vera.

Hvort löggjöfin þurfi að breytast eitthvað til að það sé hægt verð ég bara að viðurkenna að ég þekki það ekki. En ítreka það sem ég sagði áðan að mér finnst það þá vera umræða er lýtur að vinnuverndarlögum og frelsi fólks til að semja sín á milli á markaði um það.

Við höfum kannski eytt óþarflega miklum tíma í að ræða þessi mál undir nákvæmlega þessu frumvarpi, sem mér heyrist á öllu að fólk sé mjög sammála markmiðum þess. Það sem út af stendur er þá — ef ég skil fólk rétt, virðulega þingmenn sem hér hafa talað — þetta um 40 stunda vinnuvikuna. Það er þá kannski bara, eigum við að leyfa okkur að segja önnur Ella að taka umræðuna um það síðar.