149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[14:23]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um Jafnréttissjóð Íslands, nr. 13/144. Tillagan er lögð fram af formönnum allra stjórnmálaflokka.

Jafnréttissjóðurinn var stofnaður með ákvörðun Alþingis 19. júní 2015 í tilefni af því að þá voru 100 ár liðin frá því að íslenskar konur hlutu kosningarrétt og kjörgengi til Alþingis.

Til upprifjunar má minna á að megintilgangur sjóðsins er að fjármagna eða styrkja verkefni og rannsóknir sem miða að því að efla jafnrétti kynjanna í íslensku samfélagi og á alþjóðavísu. Styrkt skulu verkefni sem hafa að markmiði að varpa ljósi á samfélagslegan, umhverfislegan og efnahagslegan ávinning af auknu jafnrétti; verkefni sem vinna gegn launamun kynjanna og efla almennt jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði; verkefni sem er ætlað að vinna gegn kynbundnu ofbeldi; þróunarverkefni í skólakerfinu; verkefni sem eru til þess fallin að hvetja ungt fólk af báðum kynjum til aukinnar samfélagslegrar þátttöku og rannsóknarverkefni sem eru til þess fallin að varpa ljósi á stöðu kynjanna jafnt í samtíð sem fortíð.

Sjóðurinn nýtur framlaga af fjárlögum í fimm ár, 100 millj. kr. á ári, til ársloka 2020. Stjórnsýsla sjóðsins, bæði varsla hans og umsýsla, hefur hingað til heyrt undir velferðarráðuneytið en fluttist ásamt málaflokki jafnréttismála til forsætisráðuneytis í ársbyrjun 2019 — eða 20/119 eins og sumir segja.

Stjórn Jafnréttissjóðs Íslands var fyrst kosin á Alþingi 15. mars 2016 og gegnir því hlutverki að meta umsóknir og úthluta styrkjum sem gert er á kvenréttindadaginn 19. júní ár hvert. Stjórnin hefur átt samvinnu við félagasamtök kvenna, aðila á vinnumarkaði, ráðuneyti, skóla, sjóði og stofnanir um viðfangsefni og uppbyggingu og hefur stuðlað að þekkingarsköpun í jafnréttis- og kynjafræðum og fjölbreyttum verkefnum sem miða að réttlátara samfélag og auknum lífsgæðum.

Hér er gerð ákveðin tillaga um breytingar á sjóðnum sem hafa það markmið að efla stjórnsýslu og starfsemi hans. Tillögurnar fela í sér þær breytingar að fækkað verði í stjórn sjóðsins, að forsætisráðherra skipi stjórn sjóðsins til ársloka 2020, þrjá aðalmenn og þrjá til vara, og að stjórnsýsla sjóðsins, þar með talin varsla hans og dagleg umsýsla, verði hjá Rannís, Rannsóknamiðstöð Íslands, en ekki inni í ráðuneytinu. Gert er hins vegar ráð fyrir því að sérfræðingur á skrifstofu jafnréttismála í forsætisráðuneytinu verði tengiliður ráðuneytisins við Rannís vegna sjóðsins og að áherslur við úthlutun úr sjóðnum taki mið af #églíka eða #metoo-hreyfingunni, þannig að við úthlutun á árinu 2019 og 2020 verði kallað eftir umsóknum til verkefna og rannsókna sem stuðla að fræðslu og forvörnum með það að markmiði að útrýma kynbundinni og kynferðislegri áreitni og kynbundnu ofbeldi í íslensku samfélagi. Þannig verði lögð áhersla á að styrkja verkefni sem stuðla að fræðslu og forvarnastarfi fyrir ungt fólk um ofbeldi, áreitni, einelti og orðræðu sem ýtir undir slíkt, fræðslu fyrir ungt fólk um ábyrga afstöðu til kynlífs, kláms og kynbundins ofbeldis og aukinni þekkingu á vörnum og samræmdum viðbrögðum við ofbeldi í nánum samböndum, þar með talið heimilisofbeldi.

Frú forseti. Á þeim árum sem Jafnréttissjóður hefur starfað hafa ótalmörg verkefni hlotið styrki úr sjóðnum. Þannig hefur þekking á jafnréttismálum verið efld til muna. Ég tel að með aukinni áherslu á fræðslu og forvarnir sem einkum beinist að ungu fólki séum við m.a. að bregðast við þeim veruleika sem #églíka eða #metoo-hreyfingin afhjúpaði, en hátt í 1.000 konur úr öllum lögum íslensks samfélags hafa greint frá mismunun, áreitni og ofbeldi sem þær hafa þurft að þola á opinberum vettvangi sem og í einkalífi. Sögur kvenna af erlendum uppruna í tengslum við þessa byltingu vörpuðu ljósi á margþætta mismunun sem viðgengst á Íslandi og er löngu tímabært að við horfumst í augu við. Með aukinni þekkingu á eðli og afleiðingum áreitni og ofbeldis byggjum við grunn að stefnu og aðgerðum sem geta spornað gegn kynjamisrétti og afbyggt hið skaðlega kynjakerfi sem fer illa með okkur öll, sama hvers kyns við erum. Samhliða þurfum við að efla skilning og vitund um margþætta mismunun sem m.a. beinist gegn konum af erlendum uppruna, hinsegin konum og fötluðum konum og raunar fólki af öllum kynjum sem tilheyrir viðkvæmum hópum í samfélaginu.

Ég vil þakka formönnum flokka, en á sínum tíma voru það formenn stjórnmálaflokka á Alþingi sem fluttu þessa tillögu, fyrir að vera samstilltir á þessari tillögu. Ég vil ítreka að í ljósi þess að skipan stjórnar sjóðsins er breytt með þessum hætti mun ég eiga samtöl við formenn flokka núna um þann fulltrúa sem forsætisráðherra skipar og á að vera formaður sjóðsins. Ég tel að sú samstaða sem við höfum náð í ýmsum góðum jafnréttismálum, framfaramálum á sviði jafnréttis í víðfeðmum skilningi, sé mjög mikilvæg og ég tel að þessar breytingar séu til þess fallnar að efla sjóðinn enn og treysta hlutverk hans. Það hefur þegar sýnt sig að hann hefur skipt verulegu máli við að efla umræðu, fræðslu og rannsóknir á sviði jafnréttismála.

Ég vil leggja til að að lokinni umræðu um þessa tillögu verði henni vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.