149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[14:28]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Frú forseti. Ég er komin hingað upp til að lýsa yfir eindregnum stuðningi við þetta mál. Það skiptir miklu að haldið verði áfram, en við erum líka að horfa svolítið á reynsluna frá árunum 2016 sem sjóðurinn hefur starfað. En það er rétt, til hans var stofnað, veglega að mínu mati, árið 2015 í tilefni 100 ára kosningarréttar kvenna á Íslandi. Við skulum aðeins hafa í huga að á sínum tíma varð til Jafnréttissjóður sem var stofnaður árið 2005 að tilstuðlan Halldórs Ásgrímssonar, þar sem hann vildi efla rannsóknir einmitt í jafnréttismálum, kynjafræðum o.s.frv. Það er kannski upphafið að þessu og árið 2015 var ákveðið að reyna að nýta þann rannsóknarsjóð, sem var þá innan félagsmála- og jafnréttisráðuneytisins á þeim tíma, og efla hann frekar. Tekin voru stórhuga skref með ríkisstjórninni árið 2015 undir forystu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar og síðan annarra formanna sem voru á þáverandi ályktun. Og til þessa sjóðs var stofnað.

Það er svo sannarlega rétt að sjóðurinn hefur farið yfir ótal umsóknir og margvísleg verkefni hafa verið styrkt. Rétt er að draga það fram að ég var fyrsta hlutann í stjórn sjóðsins á þeim tíma og það voru ótrúlega merkileg verkefni og rannsóknir sem voru styrkt á sínum tíma. En auðvitað þarf að þróa þetta og þroska og taka enn frekari og markvissari skref, m.a. af þeim viðmiðum sem við höfum varðandi vísindi og rannsóknir. Þess vegna tel ég það farsælt skref, sem við höfum sammælst um, að færa þetta yfir til Rannís. Þar er komin mikil reynsla á að fara yfir umsóknir og setja fram ákveðnar kröfur.

Það var líka ríkur pólitískur vilji á sínum tíma að hafa þetta svolítið vítt, stjórnin hefði víðtæka heimild til að koma til móts við nýbreytni eða nýjar áherslur í samfélaginu. Má kannski segja að með þessari tillögu, sem er beinlínis um að taka tillit til m.a. #metoo-áhrifanna beint inn í þingsályktunartillöguna, var engu að síður sú heimild til staðar fyrir stjórn sjóðsins, með fullri virðingu fyrir háskólum landsins, að einblína ekki eingöngu á háskólarannsóknir, heldur önnur verkefni. Það gat verið kvikmyndaverkefni til að efla konur, stuðla að aukinni jafnréttisumræðu eða áherslum gagnvart Tyrklandi, man ég eftir einni umsókn, en líka hvernig hægt er að efla konur, t.d. valdefla þær á landsbyggðinni innan ákveðinna atvinnugreina o.s.frv. Það skiptir máli að það fólk sem við veljum hafi ekki bara traust, heldur líka sjálfstraust til að takast á við ólíkar umsóknir sem endurspegla samfélag ólíkra einstaklinga.

En eftir stendur að markmiðið er að auka rannsóknir á sviði jafnréttismála og í greinargerðinni segir að markmiðið sé „… að styrkja verkefni sem varpa ljósi á samfélagslegan, umhverfislegan og efnahagslegan ávinning af auknu jafnrétti; …“ Ég held og vona að við séum öll sammála um það í þingsalnum að jafnrétti er efnahagsmál, jafnrétti er samfélagsmál og jafnrétti skiptir okkur öll gríðarlega miklu máli. Þess vegna viljum við stuðla að auknum rannsóknum.

Ég lagði áherslu á það þegar hæstv. forsætisráðherra kallaði eftir samstöðu varðandi framlagningu þessa máls, sem mér fannst að sjálfsögðu eðlilegt að taka, að fyrirkomulagið á skipan stjórn sjóðsins yrði með þessum hætti. Ég undirstrika og vil fagna því sérstaklega að hæstv. ráðherra hafi getið þess í ræðu sinni að ákveðið samráð verði haft, þótt það sé erfitt með átta flokka, um skipan þess einstaklings sem hæstv. forsætisráðherra eða ráðherra jafnréttismála hverju sinni, hver sem hann verður, skipar. Því að allir flokkar hafa metnað í því að þessum málum miði vel áfram og þá skiptir sá einstaklingur sem leiðir stjórn sjóðsins auðvitað miklu máli, enda hafa verið góðir formenn í sjóðnum fram til þessa.

Að öðru leyti vona ég að þetta fari vel og hratt í gegnum nefndina með eðlilegum undirbúningi og yfirferð þingsins. Við í Viðreisn styðjum að sjálfsögðu málið. Það er síðan annað tilefni til umræðu, af því að sjóðurinn samþykkti á sínum tíma til fimm ára 100 milljónir á ári, hvað við gerum síðan í kjölfarið árið 2020 þegar sjóðurinn rennur formlega sitt skeið. Það er ekki sjálfgefið að framlengja eigi slíkt. Ég held að við eigum alltaf að nota tækifærið og spyrja: Hvað getum við gert betur? Hvaða reynslu höfum við af starfrækslu sjóðsins? En eins og þetta er núna tel ég það til fyrirmyndar og sýna mikla samstöðu, sem getur einmitt verið í þinginu, í mikilvægum málaflokkum eins og jafnréttismálin eru.