149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[14:37]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég fagna þessari tillögu til þingsályktunar um breytingu á þingsályktun um Jafnréttissjóð Íslands. Þetta er breyting á samþykkt sem gerð var hinn 19. júní 2015 í tilefni af 100 ára afmæli kosningarréttar íslenskra kvenna, en þá var samþykkt á Alþingi tillaga til þingsályktunar um að stofna Jafnréttissjóð Íslands sem nyti framlaga á fjárlögum í fimm ár.

Nú er verið að gera breytingar sem raunar komu til umræðu í hópi þingmanna þegar verið var að samþykkja tillöguna upphaflega um að skynsamlegt væri að Rannsóknarmiðstöð Íslands, Rannís, sæi um daglega umsýslu sjóðsins. Það myndi tryggja faglega vörslu og ákveðið faglegt utanumhald um þá stjórn sem væri falið að stýra sjóðnum. Ég tel þessa breytingu mjög mikilvæga.

Í aðdraganda þess að tillagan var samþykkt var til umræðu, í það minnsta á meðal margra þingkvenna, að bæta þyrfti við verkefnum og leggja meiri áherslu á þau verkefni sem nú eru komin inn í d-, e-, f- og g-lið, um fræðslu og forvarnir í íslensku samfélagi, og orðræðu sem ýtir undir slíkt, fræðslu fyrir ungt fólk og auknar forvarnir og samræmd viðbrögð við ofbeldi í nánum samböndum.

Mér finnst mjög mikilvægt að það komi hér fram að þegar málin eru rædd, og þó að ekki náist árangur í fyrstu umferð, þá gerist það oft að þolinmæði skilar árangri þegar upp er staðið. Ég ítreka ánægju mína með þessa tillögu og held að hún skili okkur fram á veginn. Ég held að sú stjórn sem hefur unnið að þessu hafi unnið vel — það er gott að þessar tillögur koma frá henni og þær séu studdar af fráfarandi stjórn. Að þessum tíma loknum, 2020, er að sjálfsögðu mikilvægt að meta starfið, leggja mat á það sem farið hefur fram og horfa til framtíðar, hvaða verkefni verða brýnust þá. Það verða örugglega brýn jafnréttisverkefni. Þau gætu orðið á öðrum sviðum, ekki endilega jafnrétti kynjanna, heldur jafnrétti á öðrum sviðum. Þetta er einmitt sjóður sem á að geta verið með puttann á púlsinum, hversu stór sem hann er hverju sinni.