149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

Jafnréttissjóður Íslands.

570. mál
[14:41]
Horfa

Jón Steindór Valdimarsson (V):

Frú forseti. Það er fagnaðarefni að þessi tillaga til þingsályktunar er lögð fram og hún setur metnaðarfull markmið og víkkar út hlutverk sjóðsins. Ég held að engum blandist hugur um að það er mjög mikilvægt að vinna með skipulögðum hætti gegn ofbeldi og kynbundnu ofbeldi ekki síst og auka þar forvarnir og fræðslu. Ég vil þó benda á að það er mjög mikilvægt að þessari fræðslu sé ekki síst beint inn á við í sjálfu kerfinu, t.d. réttarvörslukerfinu. Það er mjög mikilvægt að þeir aðilar sem þar starfa, allt frá löggæslu og til dómstóla, beri gott skynbragð á það í hverju kynferðislegt ofbeldi er falið og gildi þess að menn m.a. skilji vel það breytta viðhorf sem er í samfélaginu varðandi kynferðislegt samneyti fólks og hvenær fólk er að fara yfir mörk í því samhengi.

Ég leyfi mér að benda á að sá sem hér stendur hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar sem m.a. felur sérstaklega í sér að fræðslu sé beint inn í réttarvörslukerfið ásamt öðru. Ég vona að sú tillaga fái einnig framgang hér í þinginu.

Ég vil ítreka stuðning minn við þetta mál og tel það afar mikilvægt og sýni að það er orðin viðhorfsbreyting í samfélaginu til allra þessara mála og hún nær upp í hið háa Alþingi og er það vel, vegna þess að við sem hér stöndum höfum færi til þess að efla og bæta þetta starf til að ná mjög mikilvægum árangri fyrir samfélagið allt.