Jafnréttissjóður Íslands.
Frú forseti. Ég vil fyrst og fremst nýta tækifærið og þakka þeim hv. þingmönnum sem hér hafa talað, ekki síst þeim hv. þingmönnum sem hafa setið í stjórn sjóðsins og kynnst starfi hans innan frá. Ég þakka þeim sömuleiðis fyrir þeirra störf á vettvangi sjóðsins. Verðmæti eru fólgin í þeirri samstöðu sem finna má hér á Alþingi Íslendinga um jafnréttismálin. Við Íslendingar erum ánægð með að skipa efsta sæti á lista World Economic Forum, þegar kemur að kynjajafnrétti. Það hefur ekki síst gerst vegna þess að náðst hefur þverpólitísk samstaða um jafnréttismál, um að berjast fyrir jafnrétti kynjanna á ólíkum vígstöðvum.
En það sem ég skynja líka, og heyri á máli hv. þingmanna sem hér tala, er að þessari baráttu verður líklega aldrei lokið. Það er margt sem sá listi, þar sem við mælumst efst, mælir ekki. Það eru einmitt þeir þættir sem við ræðum sérstaklega í þessari tillögu. Við ætlum ekki að láta þar staðar numið í baráttunni fyrir auknu jafnrétti heldur einbeita okkur að því að útrýma þeirri meinsemd sem kynbundið ofbeldi og kynbundin áreitni er í íslensku samfélagi. Það gleður mig að heyra þá samstöðu sem er í þessum sal og birtist í þessari tillögu. Ég vona því að þetta verði til gæfu, þessi breyting á sjóðnum.
Síðan þarf auðvitað að ræða það, eins og hér kom fram í máli hv. þm. Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, hvað tekur við að loknu árinu 2020 og hvernig við ætlum að halda áfram að styrkja og treysta fræðsluverkefni, rannsóknarverkefni og önnur verkefni sem stuðla að auknu jafnrétti í samfélaginu.
En ég þakka hv. þingmönnum fyrir umræðuna og vona að þessi tillaga eigi eftir að fá góða afgreiðslu hér á þinginu.