149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[15:07]
Horfa

Guðjón S. Brjánsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir að leggja fram þetta frumvarp um breytingu á lögum um sjúkratryggingar, sem miðar að því að þétta netið enn frekar og færa okkur nær þeim markmiðum að koma til móts við fólk sem býr við hina ósýnilegu, ósnertanlegu erfiðleika, sálræna andlega erfiðleika.

Frumvarpið endurspeglar auðvitað þá umræðu og þau vaxandi viðhorf sem við merkjum í samfélaginu og eru á sinn hátt andsvar við þeirri vá sem steðjar að heilbrigði landsmanna og hvernig við í formgerð heilbrigðiskerfis okkar höfum brugðist við, hvaða áherslur við höfum lagt í þeirri viðleitni að hlúa sem best að landsmönnum frá vöggu til grafar.

Virðulegur forseti. Við nefnum oft á hátíðarstundum að maðurinn sé hin viti borna vera. Oft er ýmislegt sem bendir til þess að svo sé. En mannskepnan er talsvert flókið fyrirbæri. Það er ekki bara skrokkurinn sem knýr okkur áfram. Það eru líka hugsanir, pælingar, tilfinningar og ýmislegt angur sem líka er þarna og hefur áhrif. Þessir þættir hafa í sögulegu samhengi séð ekki verið giska mikils metnir en augu okkar eru að opnast fyrir mikilvægi þess að við horfum með miklu almennari hætti til velferðar og til heilbrigðis.

Eins og segir í greinargerð með frumvarpinu er markmiðið að almenn sálfræðiþjónustan falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands og hún verði þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta, en sálfræðiþjónusta er nú almennt undanskilin almennri greiðsluþátttöku sjúkratrygginganna. Þó er sálfræðiþjónusta niðurgreidd af Sjúkratryggingum fyrir börn yngri en 18 ára sem eru í meðferð hjá sálfræðingum. Þeir eru nota bene aðilar að rammasamningi sálfræðinga og Sjúkratrygginga Íslands en þar er talsverð brotalöm og sálfræðingum hefur ekki þótt það vera mjög fýsilegur kostur.

Viðhorf til sálfræðiþjónustu hafa breyst hratt á undanförnum árum. Ég man þá tíð að sálfræðingar voru nánast ekki taldir vera stétt í heilbrigðisþjónustu. Þeir voru einhvers staðar þarna fyrir utan, kannski nær félagslegri þjónustu eða einhverju öðru. Því fór fjarri fyrir aldarfjórðungi að það væri talið eðlilegt og jafnvel sjálfsagt að sálfræðingar störfuðu inni á heilsugæslu, þeir væru hluti af heilbrigðisþjónustunni og störfuðu við hlið hjúkrunarfræðinga og lækna. Þetta er breytt og nú eru sálfræðingar viðurkenndir sem lykilmeðferðaraðili í heilbrigðiskerfinu. Það er fagnaðarefni.

Sálfræðingar hafa í áravís og jafnvel í áratugi barist fyrir því að starf þeirra, þjónusta og aðferðir væru viðurkenndar í heilbrigðiskerfinu. Þeir hafa í áratugi leitast við að vekja athygli ráðamanna og almennings á því hversu mikilvægur hluti þjónustunnar sálfræðimeðferð er, ekkert síður en þjónusta geðlækna og önnur almenn heilbrigðisþjónustu. Samtök sálfræðinga hafa ítrekað bent á mikilvægi þess að auðvelda almenningi að leita sér sálfræðiþjónustu og bent á að opinber þátttaka í henni ætti að vera með sama brag og varðandi aðra heilbrigðisþjónustu.

Líðan barna og ungs fólks er sérstakt áhyggjuefni eins og flutningsmaður kom svo réttilega inn á. Við höfum vakið á þessu athygli, eins og fleiri, í okkar flokki í Samfylkingunni og höfum viljað þoka þessari þjónustu með formlegum hætti inn í skólakerfið. Við lögðum fram á 148. löggjafarþingi tillögu um innleiðingu sálfræðiþjónustu í alla framhaldsskóla. Það hefur ekki gengið fram með formlegum hætti. Það stunda um 20.000 nemendur framhaldsskólanám á Íslandi og eins og gefur að skilja glíma fjölmargir nemendur í þessum hópi við ýmislegar áskoranir í sínu lífi. Það er ljóst að ef andleg líðan nemenda er ekki góð hefur það neikvæð áhrif á námsgengi þeirra, getur aukið líkur á brotthvarfi eða seinkað námslokum verulega, en hátt hlutfall brottfalls er sérstakt áhyggjuefni á Íslandi.

Eins og hv. flutningsmaður kom inn á í ræðu sinni er það stórkostlegt áhyggjuefni að sjálfsvíg eru ástæðan fyrir hárri dánartíðni á aldrinum 18–25 ára. Það er auðvitað þyngra en tárum taki, reiðarslag fyrir aðstandendur að svona þurfi að fara, að menn greini ekki vandann, þeim yfirsjáist einkennin. Það verða eftir ör og spurningar sem erfitt verður að svara. Hvers vegna þurfti þetta fara svona?

Varðandi framboð á þessari þjónustu innan skólakerfisins lýtur grunnskólastigið sérstökum lögmálum. Ýmsir framhaldsskólar hafa með aðdáunarverðum hætti komið til móts við sína nemendur og veitt þeim stuðning að þessu leyti með sínum hætti, jafnvel með stuðningi stéttarfélaga. Það eru dæmi um það. Það er mjög gott en við viljum auðvitað að þetta verði hluti af hinni almennu heilbrigðisþjónustu. Það væri óskandi að það gæti orðið sem fyrst.

Þess má geta að flokkur hv. flutningsmanns, Viðreisn, lagði fram á 148. þingi, að mig minnir, tillögu um að þessi þjónusta væri líka skrifuð inn í starf á háskólastigi.

Á síðustu misserum hefur það verið sérstakt áhersluefni stjórnvalda að fjölga sálfræðingum í heilsugæslunni, innan heilbrigðisþjónustunnar. Það er mjög vel og það er hluti af geðheilbrigðisstefnu landsmanna. Þetta er auðvitað lykilatriði. En því fer fjarri að þessi þjónusta nái til allra þeirra sem leita sálfræðiþjónustu og þurfa hennar við, heilsu sinnar vegna. Aðgengileg sálfræðiþjónusta, utan og innan heilsugæslunnar, er mikilvæg fyrir almenning og í ljósi grafalvarlegrar stöðu stórra hópa, ungs fólks sérstaklega, þola aðgerðir ekki neina bið. Ég nefndi unga fólkið á bilinu 18–25 ára. Ungar stúlkur eiga samkvæmt rannsóknum í erfiðleikum og ungar konur, eins og hv. flutningsmaður kom inn á, líða meira af þunglyndi en kynsystur þeirra í Evrópu.

Virðulegur forseti. Íslendingar eiga ýmis vafasöm met, t.d. Evrópu- og jafnvel heimsmet í notkun á ýmislegum lyfjum, þunglyndislyfjum, svefnlyfjum, róandi lyfjum og ofvirknilyfjum. Það er umhugsunarefni samhliða þessari umræðu og tengist henni ef til vill með beinum hætti. Ekki skal á það dul dregin að lyf eru góð og lyf hafa skipt sköpum fyrir heilsu margra sem líða af sálrænum og andlegum kvillum og sjúkdómum og eflaust bjargað mannslífum. En notkun hér á landi er úr hófi fram. Hugsanlega er ástæðan sú að úrræði, jafn góð eða betri, hafa ekki verið tiltæk almenningi. Resept verður því oft lausnin og málið afgreitt þar með.

Þessar staðreyndir sem ekki verður um deilt eiga að hvetja okkur af öllu afli til að leita fjölbreyttari leiða, leggja aðrar áherslur. En tregðan er mikil. Við erum hlekkjuð í viðjar vanans en við eigum að taka alvarlega öll merki, allar viðvaranir, allar þær bjöllur og öll þau ljós sem loga og feta nýjar slóðir. Þróunin á Norðurlöndum er í átt að miklu meiri samtalsmeðferð þar sem hópmeðferð er jafnvel beitt í vaxandi mæli til að ná meiri afköstum og síðan fer meðferðin í vaxandi mæli fram í nærumhverfi fólks til að koma í veg fyrir sjúkdómsvæðingu og til að efla og viðhalda þátttöku fólks með geðrænan vanda í samfélagsverkefnum. Það er gríðarlega mikilvægt að hvetja fólk til þess að halda áfram virkni í samfélaginu. Til þess höfum við fetað nokkrar slóðir. Við erum með öflugan starfsendurhæfingarsjóð sem á að grípa fólk áður en til þessa vanda kemur og við erum að ydda þær áherslur enn frekar. Við höfum líka í heilsugæslunni farið inn á þær brautir að ávísa svokölluðum hreyfiseðlum, sem eru fjölþætt úrræði, endurhæfingarúrræði og í þeim getur líka falist sálfræðimeðferð. En við höfum hikað allt of mikið á þessu sviði því áminningarnar eru svo alvarlegar sem við horfum upp á á hverjum einasta degi.

Í nágrannalöndunum er í vaxandi mæli verið að færa meðferð og stuðning út úr hinu hefðbundna meðferðarumhverfi, út af heilbrigðisstofnunum, út úr sjúkrahúsum, allt gert til að fyrirbyggja að vandi sem er hugsanlega viðráðanlegur vaxi ekki og verði ekki krónískur.

Virðulegur forseti. Barátta fagfélaga sálfræðinga hefur staðið um árabil, eins og fyrr segir. Þeir hafa í sinni krossferð m.a. leitað til Samkeppniseftirlitsins sem hefur úrskurðað þeim í vil og talið að líta beri á sálfræðiþjónustu með sama hætti og geðlæknisþjónustu í heilbrigðiskerfinu, þarna eigi sér stað mismunun sem ekki sé hægt að skýra með eðlilegum hætti.

Stjórnvöld hafa fram á þennan dag komið sér hjá því að taka afstöðu til þessa og taka stefnu í átt að fjölþættari valkostum. Hugsanlega er það að einhverju leyti vegna þess að stjórnvöld óttast kostnað og hafa hreinlega skellt við skollaeyrum. Þetta er mikið umhugsunarefni því sýnt hefur verið fram á að sérhæfð sálfræðiþjónustu og greining, meðferð og íhlutun, draga með margvíslegum hætti úr kostnaði við heilbrigðisþjónustu. Hvernig þá? Jú, með færri innlögnum á sjúkrahús, færri einstaklingum á örorku, auknu vinnuframlagi, minni lyfjanotkun og betri líkamlegri og andlegri heilsu, meiri lífsgæðum.

Skilningur á mikilvægi heilbrigðisþjónustu sem ekki byggist á þröngri og hefðbundinni túlkun þess hugtaks fer vaxandi. Sömuleiðis fer stuðningur við niðurgreiðslu sálfræðiþjónustu vaxandi í ljósi þess hve árangurinn er góður og meðferðarheldni, eins og það er kallað, er góð.

Í aðdraganda kosninga voru allir stjórnmálaflokkar sammála um að bæta þyrfti aðgengi almennings að sálfræðiþjónustu. Áður hafa verkalýðsfélög og stéttarfélög lýst sömu skoðun. Við ættum, virðulegur forseti, að sameinast um að standa við fyrirheitin og styðja þessa (Forseti hringir.) tillögu, flýta för hennar um meðferðarstigu Alþingis og samþykkja hið fyrsta.