149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[15:33]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir innlegg hennar. Það eru nokkrir þættir sem mig langar að nefna. Ég vil taka undir þau orð sem hún lét falla hér og þakka um leið fyrir hvatninguna.

Ég ætla í rauninni bara að undirstrika að þetta frumvarp er ekki sett til höfuðs heilsugæslunni, alls ekki. Það skiptir okkur gríðarlega miklu máli að hafa öflugar heilsugæslur, að nærumhverfið sé sem sterkast, en við verðum líka að horfast í augu við að það er erfitt að manna heilsugæslurnar, ekki síst úti á landsbyggðinni. Við fórum á vegum Viðreisnar víða, m.a. inn á heilsugæslurnar og sjúkrahúsin og fundum að það er erfitt að manna sálfræðiþjónustu eða afla hennar. Auðvitað er líka verið að taka í gagnið nýja tækni, sem er fagnaðarefni, og okkur var sýnt líka fram á það. Það skiptir máli að reyna að miðla þessu vel.

Við flutningsmenn erum með þessu að horfast í augu við þann vanda og þann raunveruleika sem við blasir. Ég og hv. þm. Guðjón Brjánsson m.a. fórum vel yfir það tölulega hvað neysla þunglyndislyfja hér á landi er mikil, ekki síst meðal kvenna, og í hvaða erfiðu stöðu ungt fólk er.

Það er ákveðinn vandi. Við getum gert betur. Eitt útilokar ekki annað og við eigum að halda áfram að styðja við okkar öflugu heilsugæslur, enda eru þær líka lykillinn að því að efla landsbyggðina og þá kjarna og þjónustu sem við viljum búa fólkinu okkar um allt land.

Síðan vil ég eindregið taka undir með hv. þingmanni varðandi fjölbreytt rekstrarform, hvort sem það er í menntamálum eða velferðarmálum, en sérstaklega í heilbrigðismálum. Við eigum að tryggja jafnan rétt, tryggja að þeir sem eru á lægri launum hafi jafnan og öruggan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Það skiptir gríðarlega miklu máli að ríkið, hið opinbera, (Forseti hringir.) tryggi þjónustuna, en það eru síðan bæði hið opinbera og einkaaðilar sem geta veitt hana. Þannig getum við stuðlað að enn sterkara velferðarkerfi.