sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir og ítreka að þrátt fyrir að ég hafi einmitt verið að nefna heilsugæsluna lít ég þetta mál sömu augum og hv. þingmaður, að það sé alls ekki til höfuðs henni. Ég held að það sé algerlega nauðsynlegt að það séu sálfræðingar á heilsugæslustöðvunum. En við verðum auðvitað að horfast í augu við þá staðreynd að á sumum stöðum úti á landi þar sem fámenni er, kann að vera erfitt að ráða slíka sérfræðinga, en eins og ég sagði áðan eigum við að taka tæknina og hagnýta hana. Farið er að bjóða upp á mjög svo öruggar leiðir til að veita slíka þjónustu, sem hefur t.d. verið veitt bæði hvað varðar sálfræðiþjónustu og talmeinaþjónustu og fleira.
Af því að ég er farin að tala um það mál þá fannst mér líka áhugavert að lesa nefndarálitið um geðheilbrigðisáætlunina. Þar var lögð nokkur áhersla á þverfagleg teymi. Ég held að það sé líka ástæða til að horfa til þess þó að hér séum við fyrst og fremst að horfa á sálfræðinga, að inni á heilsugæslunni hugsum við almennt um þverfaglega nálgun gagnvart því að sinna þeirri heilbrigðisþjónustu.
Ég lít alls ekki svo á að þetta mál sé með einhverjum hætti sett til höfuðs heilsugæslunni. Ég held að þetta geti hvort tveggja unnið saman. Sálfræðiþjónusta á heilsugæslunni er meira til þess fallin að vera fyrsti viðkomustaðurinn eins og heilsugæslan á að vera. Þurfi fólk á meiri eða lengri meðferð að halda á það að geta leitað til sálfræðinga úti í bæ og fengið til þess niðurgreiðslu frá Sjúkratryggingum.