149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[15:38]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Herra forseti. Það er nákvæmlega þannig. Ég tel nálgun hv. þingmanns vera hárrétta, heilsugæslurnar eiga líka að beita sér fyrir þverfaglegri nálgun og að leitað verði til sérfræðinga, hvort sem það eru læknar, hjúkrunarfræðingar, sálfræðingar, félagsfræðingar, til að sinna einstaklingum. Ég undirstrika að fókusinn verður að vera á unga fólkið okkar. Ef við eigum að forgangsraða einhvers staðar er það til þeirra sem eru félagslega og fjárhagslega illa staddir.

Það er hárrétt, það eru biðlistar á landsbyggðinni, en það er líka vert að geta þess að þeir eru mjög langir hér á suðvesturhorninu, bæði í Kraganum, kjördæmi okkar hv. þingmanns, og ekki síður í Reykjavík. Við getum líka nýtt tæknina þar. Það þarf ekki að beina öllum inn á stofur því að tæknin getur líka leyst mjög mörg vandamál hér; verkefni, biðlista o.s.frv., hvort sem það er á sviði sálfræðiþjónustu eða annars. Ég og fjölskylda mín höfum persónulega reynslu af fjarþjónustu talmeinafræðinga.

Ef við lítum til suðurhluta Vestfjarða, af því að það eru nokkrir þingmenn Norðvesturkjördæmis hér í salnum, sjáum við hvaða magnaða breyting varð á þjónustu á Patreksfirði og Bíldudal þegar þar var gerður samningur við sjálfstætt starfandi aðila um að auka þjónustu á sviði talmeina, talmeinafræðinga. Þannig er greiðari aðgangur fyrir landsbyggðina að sérfræðingum í gegnum tæknina. Við eigum að nýta hana. Við eigum ekki að vera hrædd við það. Við eigum að taka þessi skref og virkja alla til þess, bæði sjálfstætt starfandi sem opinberra aðila.