sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég tek undir það þegar verið er að tala um forgangsröðun í þessum málum og forgangsröðun til ungs fólks. En mér finnst svona þjónusta það mikilvæg og brýn að við ættum í rauninni ekki að þurfa að forgangsraða. En þegar kemur að unga fólkinu okkar er náttúrlega líka til sú leið að vera með sálfræðinga inn í framhaldsskólunum. Ég held að það sé líka mikilvægur punktur í því efni.
Þegar kemur að forgangsröðun eða hvernig við verjum best fjármunum eru líka mjög áhugaverð verkefni í gangi á sumum heilsugæslum. Ég hygg að bæði á heilsugæslum sem tilheyra Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, og líka á einkareknum heilsugæslum, sem ég þekki til, alla vega hér á höfuðborgarsvæðinu, séu hópmeðferðir í hugrænni atferlismeðferð þar sem verið er að vinna með tilfinningar og kenna fólki að nota ýmis tæki og tól í sinni andlegu vanlíðan. Það er líka leið til að nýta fjármunina vel og þjónusta sem flesta. Ég mæli eindregið með því að það sé gert sem víðast.
Ég held að ég og hv. þingmaður séum bara ótrúlega sammála í þessu máli, eins og kannski í fleirum, það kann að vera. Ég vona að við fáum góða umræðu um þetta mál. Ég vænti þess að hv. velferðarnefnd fái eitthvað af umsögnum um málið, sem ég tel við fyrstu sýn að séu frekar jákvæðar. Ég get ekki áttað mig á því, alla vega ekki að svo stöddu, hvað kann að vera neikvætt við þetta mál eða að hverju þurfi að huga betur að, en það kemur þá í ljós í ferlinu. Ég óska hv. velferðarnefnd velfarnaðar við að takast á við þetta spennandi mál.