sjúkratryggingar.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Ásgerði K. Gylfadóttur fyrir ræðuna. Hún hefur mikla reynslu einmitt á þessum sviðum og það er dýrmætt fyrir þingheim að heyra reynslubolta koma hingað og miðla reynslu og taka utan um mál eins og þetta. Ég vil líka taka undir með hv. þingmanni að mörg mál á sviði heilbrigðismála eru mikilvæg og góð og eru ákveðin áskorun fyrir okkur í þinginu að vanda vel til verka. Það er örugglega mjög spennandi að vera núna einmitt í velferðarnefnd til að taka á ýmsum málum sem þar eru. Með því er líka verið að taka skref inn í framtíðina. Við erum að taka á þeim málefnum sem skipta okkur máli og reynum að vera svolítið á undan, vera svolítið framsýn.
En mig langar líka að taka undir það hvað landlæknisembættið varðar. Ég er ekki að gagnrýna embættið sjálft, en ég hef heyrt það víðar en frá Höfn að kerfið hafi svolítið þvælst fyrir. Það hafi tekið of mikinn tíma að koma þjónustunni að, kerfið sjálft var eflaust af góðu einu að reyna að passa upp á ákveðna hagsmuni, en við verðum líka að treysta heilbrigðisþjónustuna á hverjum stað, líka til að fara í ákveðin verkefni.
Ég spyr: Er hægt að gera meira til þess að treysta sjálfstæði sjúkrastofnana á landinu, eða heilsugæslunnar á landsbyggðinni, bæði til að koma til móts við svona mál eins og þetta, eða svona almennt til að styrkja forvarnir?
Líka hitt að ég held einmitt, af því að þingmaðurinn benti á Rannsóknir og greiningu, að þær rannsóknir sem hafa verið birtar þar reglulega frá 1991 hafi sýnt okkur að forvarnir, m.a. í grunnskólum á sviði áfengis og vímuefnamála, hafi skilað sér markvisst. Það sýnir sig að frá árinu 1991 til dagsins í dag vorum við með (Forseti hringir.) einna mestu vímuefnaneyslu meðal ungmenna. Nú höfum við einna minnstu vímuefnaneyslu meðal ungmenna í Evrópu af því að við jukum (Forseti hringir.) forvarnir. Ég held að það sé gott dæmi um að forvarnir skipta máli.