149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[15:55]
Horfa

Birgir Þórarinsson (M):

Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka framsögumanni, hv. þm. Þorgerði K. Gunnarsdóttur, fyrir yfirferðina og ágætar umræður um málið sem gengur út á að sjúkratryggingar taki til sálfræðimeðferðar. Eins og kemur fram í greinargerðinni er markmiðið með frumvarpinu að almenn sálfræðiþjónusta falli undir greiðsluþátttökukerfi Sjúkratrygginga Íslands og verði þannig veitt á sömu forsendum og önnur heilbrigðisþjónusta.

Sálfræðiþjónusta er í dag undanskilin almennri greiðsluþátttöku sjúkratrygginga. Eins og við þekkjum er sálfræðiþjónusta, ólíkt annarri heilbrigðisþjónustu, fyrst og fremst í boði á starfsstofum sjálfstætt starfandi sálfræðinga án opinbers stuðnings við þá sem þurfa á þjónustunni að halda.

Frumvarpið er jákvætt svo langt sem það nær. Í greinargerðinni segir að algengi sjálfsvíga og geðrænna veikinda sé alvarlegt vandamál og undir það skal tekið hér. Orsakir eru margar og mismunandi en ljóst er að bregðast verður við þeim vanda. Forvarnir í heilbrigðismálum skipta þar miklu máli og á það jafnt við um líkamlega sjúkdóma sem andlega. Lykilatriðið er að greiða aðgengi fólks að fyrirbyggjandi úrræðum og auka möguleika á því að takast strax á við sjúkdóma eins og þunglyndi og kvíða sem virðast vera að aukast meðal ungs fólks, sem er að sjálfsögðu mikið áhyggjuefni. Koma þarf til móts við ósýnilega sjúkdóma líkt og komið er til móts við þá sem sýnilegir eru. Þannig má auka lífsgæði fólks. Þetta eru að sjálfsögðu mjög göfug og góð markmið sem ég tek heils hugar undir.

Síðan segir að um 33% fólks hafi ekki efni á geðheilbrigðisþjónustu og þar með að leita til sálfræðings. Þetta er að mínu viti allt of há tala og þarf svo sannarlega að bregðast við því.

Eins og ég sagði áðan er frumvarpið jákvætt svo langt sem það nær. Það gengur hins vegar að mínu mati ekki nógu langt og í raun mismunar það mikilvægri starfsstétt, sem eru félagsráðgjafar. Hér á landi er vísað í alla samtalsmeðferð sem sálfræðiþjónustu þó svo að stór hluti starfandi þerapista séu klínískir félagsráðgjafar. Sálfræðingar, félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar fá allir starfsréttindi frá landlækni og þarf sömu námsgráðu eða meistaragráðu til að fá þau starfsréttindi.

Allar þær stéttir, og reyndar fjölskyldufræðingar líka, sinna sömu samtalsmeðferð út frá sömu starfsréttindum og því er mjög villandi að mínu viti að tala um sálfræðiþjónustu þar sem það vísar aðeins í eina af þeim fagstéttum. Réttara væri að vísa í orðalagið viðurkenndur meðferðaraðili og miða við að þeir sem hafa lokið meistaragráðu frá viðurkenndum háskóla og hlotið viðurkennd starfsréttindi hér á landi, frá landlækni, sem sagt félagsráðgjafar, sálfræðingar og hjúkrunarfræðingar, falli undir þá greiðsluþátttöku. Að undanskilja aðeins eina fagstétt er í raun og veru mismunun á fagaðilum sem á öllum öðrum vettvangi standa jafnfætis.

Þetta frumvarp myndi jafnframt skekkja alvarlega samkeppnisstöðu fagaðila í heilbrigðisþjónustu þar sem þær þúsundir skjólstæðinga sem í dag leita til félagsráðgjafa myndu að sjálfsögðu snúa sér til sálfræðinga í staðinn, til að geta fengið þjónustuna niðurgreidda. Með því má segja að Alþingi sé að segja, verði þetta frumvarp að lögum óbreytt, að félagsráðgjafar séu ekki jafn gildir sálfræðingum í samtalsmeðferð. Með því tæki Ísland aðra stefnu en þekkist í nágrannaríkjum okkar.

Herra forseti. Ég tel þetta vera annmarka á frumvarpinu, þótt það sé vissulega gott. Ég tel að ræða verði þá annmarka mjög ítarlega innan nefndarinnar, að þarna skuli í raun verið að mismuna fagaðilum og skekkja samkeppnisstöðu þeirra. Ég vil hvetja nefndina til að skoða alvarlega hvort ekki sé rétt að gera þá breytingartillögu við þetta frumvarp að félagsráðgjafar verði þarna undir ásamt sálfræðingum.