149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[16:01]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil upplýsa að ég hef nýlega átt fundi með félagsráðgjöfum, sjálfstætt starfandi m.a., sem hafa verið að fara yfir þessi sjónarmið sem er að ýmsu leyti skiljanlegt. Ég tel mikilvægt og eðlilegt að nefndin fari einfaldlega yfir þessi mál. Það má þó ekki verða til þess að stóra prinsippið, kjarni þessa máls, stöðvi málið. Ég mæli hins vegar eindregið með því að farið verði vel yfir þau sjónarmið sem voru mjög skiljanleg af hálfu félagsfræðinga, sem eru þá sjálfstætt starfandi m.a., að farið verði yfir þau á vegum nefndarinnar.