sjúkratryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar upplýsingar og fagna því að hv. þingmaður hefur rætt við félagsráðgjafa um þetta mál. Ég er sannfærður um að þeir hafa lýst áhyggjum sínum yfir þessu. Ég held að það sé engin hætta á því að þetta mál dragist eitthvað á langinn eða stöðvist þó svo að leitast verði við að færa þessa fagaðila undir þetta frumvarp.
Málið er afar mikilvægt í mínum huga og við getum ekki sem löggjafi skekkt samkeppnisstöðu þessara aðila með þessum hætti, með því að undanskilja ákveðna stétt sem veitir mjög mikilvæga þjónustu. Ég fagna því að þetta verði rætt innan nefndarinnar og vonast til þess að tekið verði jákvætt í þetta atriði.