sjúkratryggingar.
Herra forseti. Hún Bibba vinkona mín á Brávallagötunni kemur stundum í heimsókn til mín og ég mismælti mig áðan. Ég sagði félagsfræðingar. Ég vildi sagt hafa félagsráðgjafar og það er nákvæmlega það sem við erum að ræða hér. Ég undirstrika það að ég hitti félagsráðgjafa hér um daginn og hef verið í bréfaskiptum við ýmsa.
Ég tel mikilvægt að nefndin fari yfir sjónarmið þeirra og þá með það í huga að við erum hér að fjalla um meðferðarúrræði. Við erum að fjalla um það hvernig við getum veitt fólkinu okkar, hvort sem það er ungt eða á öðru aldursbili, ákveðna þjónustu sem er brýn, samfélagslega nauðsynleg fyrir okkur og ekki síður fyrir fólkið sjálft. Það verður farið yfir þetta og þá með hvaða hætti félagsráðgjafar veiti þá viðeigandi þjónustu hvað varðar meðferðarúrræði.
Þetta tel ég sjálfsagt og það er hluti af þeirri dínamík sem felst í nefndastarfi hverju sinni að víkka út mál, draga að sjónarmið. Það finnst mér, eins og ég hef margoft sagt, eiginlega skemmtilegasti hluti starfsins hér innan veggja þingsins. Það er þar sem við eigum þetta tækifæri til að eiga samtöl við hagaðila en líka okkar á milli um það hvernig við getum bætt og breytt málum til hins betra. Þetta er hluti af því og ég hvet nefndina til að skoða þessi sjónarmið einnig.