sjúkratryggingar.
Herra forseti. Ég ætla aðeins að blanda mér í umræðu um þetta ágæta mál. Eins og sést á þeim fjölda þingmanna sem eru meðflutningsmenn á málinu, fljótt á litið úr öllum flokkum, er a.m.k. ekki mikill ágreiningur um það prinsipp sem hv. flutningsmenn leggja upp með. Ég get algerlega tekið undir það, hef sjálfur í mörg ár talað fyrir því að þessi þjónusta sé jafn mikilvæg og önnur heilbrigðisþjónusta og mikilvægt að hún sé greidd úr sameiginlegum sjóðum eins og annað.
Í því sambandi er náttúrlega mikilvægt að koma inn á að gerð hefur nokkur bragarbót á því á undanförnum árum. Heilsugæslan er farin að taka í vaxandi mæli sálfræðinga inn í vinnu sína og teymi. Það hefur reynst afar vel. Sumir þeirra sálfræðingar hafa síðan leitað út í skólana, sem hefur einnig reynst vel. Það er að vísu á forsendum heilsugæslunnar en engu að síður mjög mikilvægt.
Eins og margir hafa komið inn á skiptir máli þegar við eigum við vandamál sem snúa að geðheilsu og geðrænum vandamálum, þar eins og annars staðar, að fjölbreytni sé í meðferðarúrræðum og menn hafi val um hvers konar þjónustu þeir leita sér. Auðvitað er það þannig í mörgum tilfellum að sum vandamál leysast ekki með samtalsmeðferð einni saman og við þurfum að grípa til lyfja. Þá kemur samvinna sálfræðinga og annarra heilbrigðisstarfsmanna, oftast geðlækna, mjög sterklega inn í. Það er líka mjög mikilvægt. En eins og aðrir hv. þingmenn hafa bent á eru einnig aðrir starfsmenn innan heilbrigðisþjónustunnar sem bjóða upp á viðtalsmeðferð og aðstoða sjúklinga með því.
Að sjálfsögðu er hv. þingmönnum vel kunnugt um það að samtalið er — ég vona að ég sé ekki að uppljóstra einhverjum fagleyndarmálum — eitt sterkasta tæki flestra heilbrigðisstarfsmanna í meðferð sjúklinga.
Það er mikilvægt í sambandi við þjónustu eins og sálfræðiþjónustu að ef og þegar þetta verður tekið í almennt greiðslukerfi verði strax í upphafi hugað að því að sálfræðiþjónusta í gegnum fjarþjónustu verði í boði. Þannig verði það úrræði í boði fyrir fólk alls staðar á landinu. En þá þarf líka að huga að því þegar gengið er frá a.m.k. reglugerðinni, ef ekki lagaumhverfinu, að gert sé ráð fyrir slíkum þáttum, gert sé ráð fyrir að fjarþjónusta, til að mynda í viðtalsmeðferð, sé hluti af þeim pakka. Ég mun fyrir mitt leyti leggja áherslu á það í vinnunni í velferðarnefnd.
Í greinargerðinni er nokkuð talað um geðheilbrigði ungs fólks, sjálfsvíg og fleira. Af því að það er vinkill sem ég þekki afar vel vil ég nefna að sálfræðiþjónustu hefur til þessa afar lítið verið beitt í þjónustu við eldra fólk. Það er áreiðanlega að hluta til vegna þess að þar er kostnaðurinn þröskuldur. Þó er í einhverjum mæli á vegum Landspítalans og á göngudeildum Landspítalans boðið upp á sálfræðiþjónustu á göngudeildum fyrir eldra fólk, sem er þá á forræði Landspítalans og þess vegna niðurgreitt í samræmi við það. Það er vel. En í þjónustu við eldra fólk, þar sem lyfjaálagið er kannski orðið enn þá meira en hjá yngra fólki, verður jafnvel enn þá mikilvægara að geta með þjónustuúrræði eins og viðtalsmeðferð og oft og tíðum með því að fækka lyfjum haft áhrif til hins betra.
Ég hlakka til að vinna með þetta mál frekar í hv. velferðarnefnd.
Mig langar aðeins að lokum að nefna það sem einhverjir aðrir þingmenn hafa komið inn á, hvort það væri flötur á því í þessari ferð að hengja fleiri starfsstéttir við frumvarpið. Mér persónulega finnst að það þurfi þá að vera býsna góð rök fyrir því, sérstaklega í ljósi þess að hér eru afar margir flutningsmenn og markmið þeirra allra geta ekki hafa verið önnur en að fylgja eftir þættinum um sálfræðiþjónustu, án þess kannski að hafa mikið velt fyrir sér öðrum starfsstéttum eða slíku. En auðvitað mun hv. nefnd taka það til umfjöllunar.