149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[16:14]
Horfa

Flm. (Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir) (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þá innsýn sem hann veitir okkur inn í þennan málaflokk í gegnum reynslu og þekkingu. Ég vil sérstaklega þakka honum fyrir að draga fram þann hóp sem við köllum eldri borgara, eldra fólkið. Við sjáum á rannsóknum að þar er mikil depurð og oft einmanaleiki.

Lyfjagjöf, eins og hv. þingmaður kom inn á, er oft mjög mikil, en við greinum líka ákveðna tortryggni meðal eldra fólks gagnvart því að leita sér lækninga á sviði geðlækninga, leita sér þjónustu hjá sálfræðingum, hugsanlega út af tortryggni eða fordómum. Heilbrigðisfólk hefur sagt mér það og mér skilst að rannsóknir sýni það líka.

Ég held að það væri líka eitthvað sem væri gott að velferðarnefnd og hv. þingmaður myndi taka upp innan nefndarinnar, þ.e. að reyna að sjá þær áherslur, þó að ég hafi, ekki spurning, lagt mesta áherslu á unga fólkið í ræðu minni, af því að þar brennur þetta mest á okkur að mínu mati núna. Vaxandi sjálfsmorðstíðni er meðal ungra pilta og gríðarleg neysla ungra kvenna sem drengja er á alls kyns lyfjum. Þetta er því áhugaverður vinkill.

Síðan er það hitt sem hv. þingmaður nefndi og ég vil taka undir með honum, þ.e. þverfaglegt teymi. Ég held að gríðarlega mikilvægt sé að slíkt verði myndað um einstaklingana. En það verði þá horft út frá einstaklingunum, ekki út frá sérfræðingunum heldur hvernig þjónustu, þvert á fagstéttirnar, viðkomandi einstaklingur þarf. Þar getur verið mjög ólík nálgun.