sjúkratryggingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur fyrir andsvarið.
Já, það getur sannarlega stundum verið grunnt á fordómum í okkar samfélagi og ég held í raun að það að við skulum ekki vera með sálfræðiþjónustu í greiðsluþátttökukerfinu sé í eðli sínu fordómar gagnvart geðrænum vandamálum. Ég held að það sé alveg rétt.
Ef við tengjum það síðan yfir til eldra fólksins, sem er sjálft kannski með fordóma gagnvart geðheilbrigðisþjónustu eða geðheilbrigði yfirleitt, þá erum við kannski komin jafnvel með tvöfalt vandamál, vegna þess að ef við leggjum saman mengið eða tökum saman hópinn, aldursfordóma og hins vegar fordóma gagnvart geðrænum vanda, og ímyndum okkur að það séu til einhvers konar margfeldisáhrif þar á milli, er alveg klárt að aldraður einstaklingur sem á við geðræn vandamál að stríða lendir svo að segja tvöfalt í þeim vanda, og getur endað með skelfilegum afleiðingum. Því að þrátt fyrir að tíðni sjálfsvíga sé tiltölulega algeng, eða sé of algeng skulum við segja, meðal yngra fólks er hún líka há meðal eldra fólks. Vandamálið er hins vegar miklu duldara þar og fer hljóðar. En vandamálið er sannarlega til í þeim hópi.
Varðandi það sem þingmaðurinn sagði um teymisvinnu og að teymin ættu að vera á forsendum notendanna, þá er ég algerlega sammála þingmanninum hvað það varðar.