149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

sjúkratryggingar.

513. mál
[16:19]
Horfa

Sigurður Páll Jónsson (M):

Hæstv. forseti. Ég ætla rétt að koma upp til að lýsa ánægju minni með frumvarpið og þakka 1. flutningsmanni, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrir. Ég er meðflutningsmaður á málinu og fagna málefninu og hef ekkert nema gott um það að segja.

Ég hjó aðeins eftir því sem kom fram í máli hv. þm. Birgis Þórarinssonar áðan, þeim vinkli að félagsráðgjafar og hjúkrunarfræðingar ættu að vera undir sama hatti. Það er kannski eitthvað, eins og kom fram í máli flutningsmanns og í andsvörum líka, sem þyrfti að taka til athugunar í nefndinni. Gott að finna að hv. þingmaður tekur vel í það.

Ég gleðst ekki síst yfir málinu vegna þess að ég er mikill áhugamaður um góða heilsu fólks, ekki síst fólks sem er haldið þeim sjúkdómi sem heitir alkóhólismi. Fyrst minnst var á fordóma áðan þá eru fordómar gagnvart þeim sjúkdómi. Ég bar þá von í brjósti að það myndi minnka með árunum en það virðist ganga í bylgjum eins og svo margt annað, að mínu mati, og mér finnst í dag vera töluverðir fordómar gagnvart alkóhólisma, að einhverju leyti.

Ég verð að segja eins og er að ég hef verið töluvert að glíma við hæstv. heilbrigðisráðherra um þau mál sem lúta að alkóhólisma og meðferðum. Ráðherranum er mjög tíðrætt um sálfræði og geðraskanir versus alkóhólisma og talar um, að því er mér finnst oft mega skilja, að það sé oft vafi hvort komi á undan, hænan eða eggið í því og það þurfi að vinna þetta saman. En í mínum huga gagnvart þeim sjúkdómi, alkóhólisma, eru geðraskanir oftast nær afleiðing af neyslunni, misjöfn eftir því hvaða efni eru notuð.

Ég talaði einmitt um það í störfum þingsins í gær að í ljós hefur komið með rafsígarettur eða veipur, að farið er að nota þær til að blanda í olíuna kannabisefnum og öðru sem hægt er að setja í olíu og reykja það í gegnum rafsígaretturnar. Ég hef þær fréttir innan úr meðferðargeiranum að það er orðið töluvert um fólk í meðferð sem hefur ánetjast slíkum efnum í gegnum rafsígarettur. Það segir manni að þetta er alltaf síbreytilegt, alltaf síbreytilegt hvernig efnin þróast, hvernig neyslan er og hvernig þetta allt er innbyrt. Þetta er kannski ekki eins og þetta var fyrir 30, 40, 50 árum þegar var bara brennivín í vatni. Það er gríðarleg þróun í þessu. Þó að efnin í fíkniefnaheiminum séu mjög skyld efni, mörg hver, heita bara mismunandi nöfnum, er þróunin í neyslunni og hvernig efnanna er neytt mjög misjöfn.

Ég vitnaði einmitt í frétt sem ég sá frá Bandaríkjunum þar sem flest ríki Bandaríkjanna eru búin að lögleiða kannabisefni á einhvern hátt, þó misjafnlega mikið á milli ríkja, að þar er markaðssetning viðskiptaafla slík að það telur í milljörðum bandaríkjadala til að fá fólk til að neyta þessara fíkniefna.

En ég fagna frumvarpinu, að gera fólki kleift að leita til sálfræðings án gjalds, eða sem sagt að koma þessu inn i sjúkratryggingar. Af því að ég nefndi alkóhólisma, þá er mjög algengt að þeir sem eiga í þeim vanda byrja oft á að leita til sálfræðinga eða geðlækna áður en þeir fara í meðferð, annaðhvort áfengis- eða vímuefnameðferð. Einhverra hluta vegna er það oft þannig. Fólk leitar ekki fyrst þangað sem það ætti kannski að leita í upphafi, en sálfræðingar geta náttúrlega hjálpað fólki og vísað því á að fara í meðferð. Oft og tíðum er fólk sem er í mjög djúpri og erfiðri neyslu ekki með mikinn pening á milli handanna. Því getur það létt sporin að leita sér hjálpar ef það kostar ekki neitt eða lítið.

Þess vegna fagna ég frumvarpinu og í mínum huga er þetta bara partur af forvörnum. Það hefur mikið forvarnagildi að koma þessu í gegn og fá þetta fram. Eins víðfeðmt og orðið forvörn er þá er líka mjög víðfeðmt orðið sálfræðingur eða sálfræði sem slík og nær yfir vítt svið.

Það er nefnilega þannig, eins og ég sagði áðan, að þróun sjúkdóma, þróun efna og annað slíkt, er síbreytileg og við þurfum alltaf að vera á vaktinni. Forvarnir hafa sýnt það, hvar sem þær hafa verið notaðar, að þær gera mikið gagn. Eins og kom fram hjá frummælanda áðan hafa þær stuðlað að minni fíkniefnanotkun ungs fólks. En það er nú þannig með forvarnir að þær þurfa að vera sífelldar. Það þarf alltaf að hamra á forvörnum.

Ég fræddist vel um það í haust þegar ég stóð fyrir sérstakri umræðu um forvarnir, að það er þessi vinna frá vöggu til grafar í sambandi við forvarnir, að það verður að vera sífelld vinna við forvarnir og að sjálfsögðu leikur sálfræðiþátturinn stórt hlutverk.

Ég ætla ekki að hafa mál mitt miklu lengra. Ég fagna þessu máli og hef sterka trú á að það fái gott brautargengi. Það sést bara á fjölda þess fólks úr öllum flokkum, sýnist mér, sem er á málinu. Þar af leiðandi vil ég þakka fyrir það.