tekjuskattur.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, með síðari breytingum (afnám rúmmálsreglu og frístundahúsnæði). Frumvarpið er á þskj. 84, mál 84. Meðflutningsmenn eru hv. þingmenn Jón Gunnarsson, Njáll Trausti Friðbertsson, Brynjar Níelsson, Haraldur Benediktsson og Vilhjálmur Árnason. Þess ber að geta, eins og kemur fram í greinargerð, að frumvarp sama efnis hefur verið lagt fram nokkrum sinnum, fjórum sinnum. Þetta er sem sagt fimmta tilraunin. Við flutningsmenn erum vongóðir um að við náum a.m.k. lengra en í seinustu tilraun.
Í 17. gr. laga um tekjuskatt er ákvæði um söluhagnað af íbúðarhúsnæði. Söluhagnaður er mismunur á söluverði og stofnverði að teknu tilliti til fyrninga og áður fengins söluhagnaðar. Stofnverð er kostnaðarverð eigna.
Meginreglan er sú að ef maður hefur átt hið selda húsnæði skemur en tvö ár telst hagnaður af sölu þess til skattskyldra tekna á söluári. Ef maður hefur átt hið selda húsnæði í tvö ár eða lengur telst hagnaðurinn ekki til skattskyldra tekna. Ákvæðið á aðeins við um sölu íbúðarhúsnæðis í eigu manna, einstaklinga eða hjóna.
Enn fremur er kveðið á um undanþágu sem í frumvarpi þessu er lögð til að falli brott. Með öðrum orðum er það þannig að ef íbúðarhúsnæði fer yfir tiltekin stærðarmörk er sala íbúðarhúsnæðis skattskyld óháð eignarhaldstíma. Stærðarmörkin eru 600 m3 ef um einstakling er að ræða og 1.200 m3 í tilviki hjóna og er þá söluhagnaður skattskyldur af þeim hluta húsnæðis sem er umfram þessi mörk. Þessi svonefnda rúmmálsregla á þó aðeins við þegar íbúðarhúsnæði er selt sem ekki hefur verið til eigin nota.
Framangreind rúmmálsregla á rót sína að rekja til 4. töluliðar 3. gr. laga nr. 7/1972. Frumvarp það sem síðar varð að téðum lögum var á sínum tíma lagt fram með það fyrir augum að dreifa skattbyrðinni á réttlátari hátt en tíðkast hafði. Fyrir gildistöku rúmmálsreglunnar miðaðist skattfrelsi aðeins við eignarhaldstíma og jókst eftir því sem hann var lengri þar til fullu skattfrelsi var náð. Má gera ráð fyrir að rúmmálsreglunni hafi einkum verið ætlað að jafna stöðu þeirra eignaminni og þeirra sem meira áttu.
Það er mjög mismunandi hvernig skattlagningu söluhagnaðar íbúðarhúsnæðis eða afnotaréttar er háttað í okkar helstu samanburðarlöndum. Í Danmörku eru mörk skattlagningar miðuð við tiltekið flatarmál. Enga slíka reglu er að finna í norskri löggjöf heldur er aðeins miðað við tíma eignarhalds. Í sumum ríkjum Bandaríkjanna er frítekjumark á söluhagnaði af íbúðarhúsnæði. Enginn skattur er lagður á slíkan söluhagnað í Bretlandi. Ætla má að þessi mismunur á skattlagningu ráðist af aðstæðum á hverjum stað.
Um langa hríð hefur bróðurpartur eignamyndunar landsmanna átt sér stað við kaup og eignarhald á íbúðarhúsnæði og á síðustu áratugum á hið sama við um frístundahús. Hinn bróðurparturinn er auðvitað lífeyrisréttindi. Að starfsævinni lokinni er algengt að menn minnki við sig húsnæði og innleysi sparifé með sölu húseigna. Því fé sem er innleyst á þennan hátt er oft ætlað að standa undir rekstri heimilis viðkomandi þegar líður á ævikvöldið. Það er því ekki að undra að rúmmálsreglan hefur komið nokkuð illa niður á eldri borgurum sem eru sestir í helgan stein og njóta ekki lengur atvinnutekna.
Með frumvarpinu er lagt til að framangreind rúmmálsregla verði felld brott úr lögum um tekjuskatt. Verði frumvarpið að lögum ræðst skattskylda söluhagnaðar af sölu íbúðarhúsnæðis — og sumarhúsa, ég vek athygli á því — aðeins af tíma eignarhalds, þ.e. hvort það hafi varað í tvö ár eða skemur en ekki jafnframt af ákveðnum stærðarmörkum.
Markmið frumvarpsins er annars vegar að einfalda tekjuskattslögin og skattframkvæmd og hins vegar að koma til móts við áðurnefnda stöðu eldra fólks.
Frú forseti. Ég vil þó vekja athygli á því að þegar þetta mál var hér til meðferðar síðast sendi ríkisskattstjóri inn umsögn. Með leyfi hæstv. forseta, finnst mér rétt að vitna beint í þá umsögn þar sem talað er um þá breytingu sem lögð er til hér:
„Um pólitíska ákvörðun er að ræða sem ríkisskattstjóri tekur ekki afstöðu til en verði frumvarpið samþykkt óbreytt mun það einfalda skattframkvæmd hvað þetta varðar. Hafa þarf þó í huga að hugsanlega kunna að tapast skatttekjur“ — þ.e. skatttekjur fyrir ríkið — „ef eignir eru keyptar og seldar ört.“
Frú forseti. Að loknum þessum umræðum hér í dag legg ég til að frumvarpið verði sent til efnislegrar meðferðar til efnahags- og viðskiptanefndar.