149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

tekjuskattur.

84. mál
[16:36]
Horfa

Álfheiður Eymarsdóttir (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Óla Birni Kárasyni fyrir framsöguna en ég er með nokkrar spurningar. Ég skil þetta sem svo að tveggja ára reglan haldi sér, þ.e. hvað varðar eignir eða húsnæði, hvort sem er frístundahúsnæði eða annað íbúðarhúsnæði. Mér finnst það mjög göfugur tilgangur ef ætlunin er að einfalda skattkerfið. Ég er 100% fylgjandi því. Rúmmálsreglan sjálf á hins vegar ekki við þegar um íbúðarhúsnæði til eigin nota er að ræða. Þannig að seinna markmiðið, sem er að gera eldra fólki auðveldara fyrir að eiga áhyggjulaust ævikvöld, á þá í raun við um eldra fólk sem á fleiri eignir en eignina sem það býr í þar sem sú eign virðist undanskilin samkvæmt rúmmálsreglunni eins og hún er núna. Ég vildi fá svör við þessu.