tekjuskattur.
Herra forseti. Bara svo að það sé skýrt þá er það rétt hjá hv. þingmanni að tveggja ára reglan heldur sér. Það er einhver misskilningur, hygg ég, hjá þingmanninum, hafi ég ekki misskilið hana. Við erum að tala um að einfalda skattkerfið — það er rétt. Breytingin er varðar rúmmálsregluna er að fella hana niður og hún nái til frístundahúsa. Það er kannski ein stærsta breytingin í þessu. Það er hins vegar rétt að tveggja ára reglan heldur sér. Svo fremi sem íbúðarhúsnæði er notað til eigin nota skiptir rúmmálið ekki máli — ef hv. þingmaður var að tala um það þá er það réttur skilningur hjá hv. þingmanni.
En þetta mun breyta öðru, sérstaklega er varðar eignir eins og frístundahús, alveg örugglega, og aðrar eignir sem eru íbúðir. Það er auðvitað ljóst að hér hefur fólk fjárfest hluta af ævisparnaði sínum í íbúðarhúsnæði og vill síðan losa. Við erum að koma til móts við það.