149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

tekjuskattur.

84. mál
[16:42]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil benda hv. þingmanni á 2. gr. í frumvarpinu þar sem flutningsmenn eru í raun að breyta 17. gr. tekjuskattslaganna í þá veru að íbúðarhúsnæði teljist allt húsnæði til lengri eða skemmri dvalar, þar með talið frístundanotkun. Það er hins vegar rétt hjá hv. þingmanni að hafi einstaklingur eða hjón átt íbúð sem þau hafa búið í, til eigin nota, lengur en í tvö ár þá reiknast ekki skattskyldur söluhagnaður af þeirri sölu. Það er rétt.

Við erum hins vegar að víkka þetta út og viljum að þetta nái til íbúðarhúsnæðis samkvæmt þeirri skilgreiningu sem kemur fram í a-lið 2. gr., þ.e. íbúðarhúsnæði telst allt húsnæði til lengri eða skemmri dvalar, þar með talið frístundanotkun, og við viljum afnema rúmmálsregluna þegar kemur að þessum þætti.

Ég vona að þetta sé nægilega skýrt. Ég hef notið þess ásamt fleirum að hafa hv. þingmann í efnahags- og viðskiptanefnd og kannski njótum við þess þegar þar að kemur, þegar við tökum til við þetta mál, að eiga þar ágætt spjall saman.