149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.

184. mál
[17:01]
Horfa

Flm. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er alveg sammála henni í þeirri nálgun að við þurfum að horfa á málið út frá miklu fleiri sjónarhornum en bara auðsöfnun. Loftslagsmálin tengjast öllu því sem við erum að fást við í dag og þá öllum þeim auðlindum sem hér eru undir. Við þekkjum það að úti í heimi eru menn að reyna að koma sér fyrir þar sem jarðnæði er að verða of lítið fyrir stórar þjóðir. Við þekkjum uppkaup víða erlendis. Ég tek undir það með hv. þingmanni að auðvitað ættum við að skoða það líka með íslenska auðmenn. Í greinargerðinni er líka talað um að ekki megi mismuna út frá þjóðerni þannig að kannski ætti það eðlis máls vegna að taka til almennrar söfnunar eigna. Ég er sammála hv. þingmanni í því og kannski gerir nefndin tillögu um það þegar hún fær málið í sínar hendur. Þetta snýst að mínu mati fyrst og fremst um að góðar landbúnaðarjarðir fari ekki úr nýtingu, frekar ætti að gera ráðstafanir til að halda þeim í nýtingu, og svo að ekki sé verið að kaupa upp auðlindir, heilu árnar, þar sem vatnslindir eru undir eða annað slíkt. Þá skiptir engu máli hvort Íslendingur eða útlendingur gerir það og lokar landinu. Það þekkir maður úr eigin kjördæmi þar sem búið er að kaupa upp allt of mikið og styttist í að manni verði hreinlega ekki fært að fara um vegna þess að landið er bara fyrir viðkomandi sem á það eða fyrir þá ferðaþjónustu sem þar hefur komið sér fyrir.

Ég tek undir þetta með hv. þingmanni og vona að nefndin taki þetta með sér inn í vinnuna.