149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.

184. mál
[17:03]
Horfa

Albertína Friðbjörg Elíasdóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og er glöð að heyra að hún er sammála mér um þetta. Ég tek undir væntingar hennar um að nefndin skoði það sérstaklega. Hv. þingmaður nefndi bújarðir og því um líkt og því langaði mig í síðara andsvari, sem ég ætla ekki að hafa langt, að spyrja hv. þingmann hvað henni finnist um reglur um fasta búsetu á bújörðum, eins og eru t.d. í Danmörku og þekkjast víðar þannig að þá sé bara tryggt, sérstaklega um bújarðir, að þar sé búseta og virkur landbúnaður. Það væri áhugavert að fara nánar út í þá umræðu en ég ætla ekki að lengja hana að svo stöddu.