endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.
Frú forseti. Ég tek undir það. Eins og ég var byrjuð að segja í mínu fyrra andsvari getur maður ekki ákveðið hvort einhver heldur áfram að vera bóndi eða hvort einhver tekur við en a.m.k. á að reyna að koma í veg fyrir að bændum fækki í okkar samfélagi vegna þess að þeir neyðist til að selja sig út úr búgreinunum. Það er auðvitað annar handleggur, fyrir utan þennan, en samt partur af málinu. Við þekkjum það að vegna bágrar stöðu eru bændur að selja sig út úr búskap og það er einn orsakavaldurinn í þessum miklu uppkaupum, þeir fá gott verð, sjá tækifæri og yngra fólkið sér ekki alveg sama tækifæri til að koma sér inn í búgreinina til að geta nýtt jörðina til ræktunar.
En mér finnst mjög mikilvægt að skoða, a.m.k. þegar aðilar eru að kaupa ræktað svæði, að þar sé búsetuskyldu, eins og kemur t.d. fram í greinargerðinni. Ég þekki ekki eftirspurnina eftir ábúð í Danmörku sem er löng regla, tíu ára regla, sem ég kann ekki alveg og veit ekki hvort gengur vel að manna eða hvort kynslóðaskiptin séu tiltölulega einföld.
Mér finnst við þurfa að skoða þetta og ég legg áherslu á að það er partur af því að horfa þannig á málið að menn geti ekki bara keypt upp jarðir og heilu landsvæðin og þurfi ekki að dvelja þar nema kannski einu sinni á ári með fjölskylduna og setja stöng í á eða álíka. Það getur ekki dugað til og að á meðan séu bara ljósin slökkt í sveitunum eða aðrir hafa ekki aðgang að nýtingu auðlindanna.
Þessi hugsun fer væntanlega líka inn í umræðuna í nefndinni.