endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og það gleður mig að heyra að hún er svo sem ánægð með hugmyndina sem þessi þingsályktunartillaga lýtur að. Það er alveg rétt að greinargerðinni er mjög ítarleg. Það er líka verið að fara í gegnum löggjöfina og hvernig hún hefur breyst, þannig að það er hluti af því hvers vegna rætt er um margt annað í greinargerðinni.
Ég hef alltaf litið á það þannig að uppkaup séu ekki bara eitt land eða ein eign eða eitthvað þannig. Uppkaup eru það þegar einhver kaupir í miklu magni. Það er skilningurinn í þingsályktunartillögunni, að mikið landsvæði safnist ekki á hendur einhverra einstaklinga eða þess háttar, eins og við höfum séð. Tek ég dæmi úr Vopnafirði þar sem búið er að kaupa upp risastórt landsvæði og margar eignir, eins í Fljótunum þar sem búið er að gera slíkt hið sama þar sem nánast er eftir einn aðili. Þá á viðkomandi nánast öll Fljótin, eða stóran hluta úr þeim, yfir Lágheiðina og til Ólafsfjarðar.
Þannig lít ég á uppkaup, bara svo það sé á hreinu, og set það hér með inn af því að þetta mál fer til atvinnuveganefndar og þar hafa nefndarmenn væntanlega mína skýringu á því.
Ég vona að ég hafi getað svarað þessu. Ég er ekki að segja að erlendur aðili megi ekki kaupa hér jörð, ég sé ekkert að því, en það sem ég vil samt leggja áherslu á er að erlendir aðilar geti ekki keypt hér ræktanlega bújörð og haft hana undir sumarhús. Það er eitt af því sem ég óska eftir að verði skoðað. Mér finnst eðlilegt að þær jarðir sem við skilgreinum núna sem landbúnaðarjarðir, (Forseti hringir.) verði það áfram og þannig sé í rauninni verið að þrengja skilyrðin varðandi búsetu.