149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi.

184. mál
[17:25]
Horfa

Líneik Anna Sævarsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Hér ræðum við mjög mikilvæga tillögu til þingsályktunar um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi. Ég vil byrja á að þakka flutningsmönnum tillögunnar nú og fyrr og lýsa því yfir að ég styð það heils hugar að þessi tillaga fái umfjöllun hér og fari til frekari vinnslu í nefnd. Ég tel að eitt af mikilvægum verkefnum Alþingis þessi misserin sé að taka þá prinsippákvörðun að tryggja eignarhald landsmanna á auðlindum á landi til framtíðar.

Þegar sú ákvörðun verður tekin kann það hins vegar að taka nokkurn tíma að samhæfa lög, reglur og verklag þar að lútandi. Tillagan sem við ræðum lýtur einmitt að mikilvægum skrefum í því sambandi. Fyrst og fremst þurfum við að taka þessa grundvallarprinsippákvörðun.

Hv. flutningsmaður, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, hefur farið vel yfir rök fyrir tillögunni eins og hún liggur fyrir. Fyrr í vetur fór fram sérstök umræða um eignarhald á bújörðum og mögulegar takmarkanir á því samkvæmt ákvæðum ábúðar og jarðalaga. Í þeirri umræðu kom margt áhugavert fram sem á við umfjöllun um þessa tillögu. Ég tel einmitt mikilvægt að víkka umræðuna út og líta á auðlindir á landi út frá fleiri sjónarmiðum en nýtingu lands til landbúnaðar og matvælaframleiðslu, þó að það sé vissulega kjarninn í umræðunni um ráðstöfun lands.

Undanfarið hefur mikil umræða átt sér stað í samfélaginu um eignarhald á bújörðum og landi og ljóst er að margir hafa áhyggjur af því að Íslendingar séu með andvaraleysi að tapa eignarhaldi á auðlindum á landi. Ekki síst hef ég heyrt slíkar áhyggjur frá Íslendingum sem vinna hjá alþjóðastofnunum og þekkja til víða um heim. Þá berast stöðugt fréttir af aðilum, innlendum sem erlendum, sem hamstra land á Íslandi með jafnvel kaupum á heilu sveitunum, eða eiga hér land án nokkurrar raunverulegra tengsla við landið eða markmiða um landnýtingu.

Í september síðastliðnum fékk ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála til sín álit starfshóps um endurskoðun eignarhalds á bújörðum. Þar voru settar fram átta tillögur að leiðum til að viðhalda ræktanlegu landbúnaðarlandi og búsetu í sveitum landsins með breytingum á jarðalögum og ábúðarlögum. Ríkisstjórnin hefur í framhaldi af því sett af stað frekari vinnu með þær tillögur sem forsætisráðuneytið leiðir, enda snúa sumar þeirra tillagna að fleiri en einu ráðuneyti. Ég tel að sú þingsályktunartillaga sem við ræðum gæti víkkað út og bætt við þá vinnu sem nú þegar fer fram þar.

Á þessu sviði verður að vinna hratt og mikilvægt er að fá fram sjónarmið þingsins með umfjöllun um þingsályktunartillögu um endurskoðun á lagaumhverfi er varðar uppkaup á landi. Ég álít sjálf allt land vera auðlind, landið sjálft, jarðveginn og gróðurinn sem þar þrífst. Sumt land nýtist til matvælaframleiðslu, annað til útivistar og auk þess geta fylgt landi önnur gæði sem enn auka verðmæti þess, t.d. veiði og vatnsréttindi. Meðferð og notkun alls lands skiptir alla landsmenn máli, bæði nú og til framtíðar litið. Það felast því miklir almannahagsmunir í ráðstöfun og meðferð lands. Því geta ekki og eiga ekki að gilda sömu reglur um kaup og sölu á landi eins og á hverri annarri fasteign.

Þjóðlendur eru nú um 40% landsins, en landi sem hvorki tilheyrir þjóðlendum né þéttbýli er skipt niður í jarðir. Sá hluti landsins sem er skipt niður í jarðir er því um 50–60% af Íslandi. Þær jarðir eru nú 6.000–7.000 eftir því hvernig á það er litið og hefur ásókn fólks, sem ekki er búsett á Íslandi, eftir eignarhaldi á jörðum aukist á síðustu árum. Við það færist eignarhald auðlinda úr landi en auk þess vakna spurningar um, eins og áður var komið að, eignasöfnun á fárra hendur og óþekkt og óljóst fyrirsvar jarða. Þegar jörð fer í eyði tapast verðmæti, svo sem húsnæði og ræktun, vegir, dreifikerfi rafmagns og fjarskipta veikjast, sem og samfélögin í strjálbýlinu og sveitarfélögin sem þau tilheyra. Eignarhald ráðstöfunarréttar og ábyrgð á landi þarf að vera í höndum landsmanna.

Stjórnvöld geta beitt ýmsum tækjum til að hafa áhrif á ráðstöfun lands og meðal tillagna í skýrslunni sem ráðherra fékk í hendur í haust er að lögfesta búsetuskilyrði, skilyrði um nýtingu lands í landbúnaðarnotum, takmarkanir á stærð lands og/eða fjölda fasteigna í eigu sama aðila, fyrirframsamþykki opinberra aðila, svo sem ríkis eða sveitarfélags, og að unnin verði hlutlæg viðmið um slíka ákvarðanatöku, verðstýringarheimild og skýrari reglur um fyrirsvar jarða.

Sú leið sem ég tel að ætti að ganga beint í að festa í lög eða reglugerð er skilyrði um að einstaklingur sem öðlast eignarrétt eða afnotarétt yfir landi í landbúnaðarnotum skuli hafa lögheimili hér á landi eða hafa áður haft lögheimili um tilgreindan tíma, t.d. fimm ár. Um þetta má sækja fyrirmyndir til Noregs og Danmerkur, eins og farið hefur verið yfir. Ég tel að slíkar takmarkanir eigi ekki að vera bundnar við land í landbúnaðarnotum, heldur ná yfir allt land. Eignarhaldi og umsjón lands á og þarf að fylgja skýr ábyrgð og skyldur.

Tillögurnar úr áðurnefndri skýrslu hafa margar komið til umræðu áður, en útfærslan þvælst nokkuð fyrir okkur. Ástæðuna tel ég vera að okkur vanti ákveðinn grunn. Annars vegar þarf að undirbyggja þessa vinnu í skipulagsáætlunum sveitarfélaga og hins vegar þarf að bæta skráningu lands. Til að ná árangri þurfum við að gæta að samspili laga, skipulagsáætlana og markmiða og grunnupplýsinga um landið. Eins og hv. þm. Álfheiður Eymarsdóttir kom inn á í andsvari fyrr í umræðunni tel ég skipulagsáætlanir vera lykiltæki í þessu skyni. Stjórnvöld og almenningur hefur nefnilega áhrif á landnýtingu í gegnum skipulagsáætlanir sveitarfélaga. Þar væri hægt að setja markmið um búsetu og sjálfbæra landnýtingu. Ef sveitarfélögin nota skipulagsáætlanir betur til að setja markmið um ráðstöfun lands og hvaðeina um landnýtingu væri byggt undir hlutlægu viðmiðin, sem lagt er til að verði unnin.

Sveitarfélög gætu skilgreint landbúnaðarland sem halda skal í ræktanlegu ástandi og líka jarðir þar sem heilsársbúseta telst æskileg. Geta þar komið inn fleiri sjónarmið en nýting til landbúnaðar, svo sem styrking samfélaga, öryggissjónarmið, eftirlit lands, eftirlit minja og náttúruvernd. Í landsskipulagsstefnu er meira að segja gert ráð fyrir að sett verði fram leiðarljós um landnotkun í dreifbýli til leiðbeiningar fyrir skipulagsgerð sveitarfélaga. Þannig næðist ákveðið samræmi milli sveitarfélaga. Ég hef einmitt óskað eftir upplýsingum um stöðu þeirrar vinnu frá umhverfis- og auðlindaráðherra.

Bætt skráning landeigna er auk þess forsenda þess að hægt verði að beita stjórntækjum markvisst við ráðstöfun lands. Til þess þarf að byggja upp miðlæga landeignaskrá. Eitt af tækjunum sem stjórnvöld gætu beitt er skattlagning til að hafa áhrif á nýtingu fasteigna, eins og jarða og húsa sem á þeim standa. Þannig mætti beita fasteignaskatti sem hvata til nýtingar eigna í strjálbýli með því að leggja hærri skatta á eignir sem ekki eru nýttar. Til að það sé hægt þarf að bæta skráningu landeigna.

Tæknin fyrir betri landeignaskrá er til staðar. Aðeins þarf að setja reglur um skráningu og ganga skipulegar til verks. Landeignaskrá Íslands yrði grunnur að skynsamlegri og sjálfbærri nýtingu auðlinda á jörðum með hagsmuni komandi kynslóða að leiðarljósi. Við þurfum að þekkja landið, við þurfum að skrá það og við þurfum að skipuleggja það. Þannig gætum við útfært eðlilegar takmarkanir og búið til hvata til búsetu, nýtingar og nýsköpunar í strjálbýli.

Við verðum að bregðast við núna og ég styð því fyrirliggjandi þingsályktunartillögu og að um hana verði fjallað, þó að ég telji líka skynsamlegt og hugsanlegt að á henni yrðu gerðar breytingar í nefnd.