149. löggjafarþing — 69. fundur,  21. feb. 2019.

endurskoðun verklagsreglna um skilarétt neytenda, gjafabréf og inneignarnótur.

44. mál
[18:32]
Horfa

Ásgerður K. Gylfadóttir (F):

Virðulegur forseti. Ég vil byrja á að þakka flutningsmanni tillögunnar fyrir að leggja hana fram og tek undir með hv. þm. Þórunni Egilsdóttur, það er kominn tími til eftir 17–18 ára reynslutíma á þessum verklagsreglum sem greinilega hafa ekki virkað sem skyldi. Auðvitað hafa ákveðin fyrirtæki tekið ábyrgð á sínum málum og fylgt þeim en það er vont að það sé ekki almennt. Mig langar til að horfa á þetta aðeins sem gæðamál og jafnvel umhverfismál, gæðamál í þeim skilningi að verslun og þjónusta sammælist ekki um að hafa samræmdar reglur þannig að neytandinn geti gengið að þeim sem vísum. Ég vísa þar til ferðaþjónustunnar þar sem Vakinn hefur komið mjög sterkt inn. Fyrirtæki verða að uppfylla ákveðin skilyrði um gæði og neytandinn hefur ákveðna tryggingu. Hugsanlega væri hægt að líta á það sem gæðaviðmiðið fyrir verslun og þjónustu að vera aðili að þessum verklagsreglum og taka samfélagslega ábyrgð.

Út frá umhverfisvinklinum má sjá ákveðna sóun í þessum málaflokki þegar fólk situr t.d. uppi með margar eins bækur. Við gætum reyndar kannski gefið þær um næstu jól en þá væru þær orðnar gamlar. Maður þarf að koma út hlutum sem maður nær ekki að skila innan ákveðins skilafrests. Í greinargerðinni kemur mjög vel fram að fyrir fólk á landsbyggðinni og aðra aðila sem eiga ekki heimangengt eða komast bara ekki til að skila innan ákveðins tímaramma þó að það séu ekki endilega langt að fara er tíminn ansi knappur. Maður tekur upp jólapakkann 24. desember og þarf að skila eða skipta fyrir 30. desember. Það er mjög slæmt mál.

Við sjáum það líka á Facebook-síðu þar sem hlutir ganga kaupum og sölum að þar eru föt boðin til sölu með verðmiðanum á. Það er dapurlegt að fólk þurfi að grípa til þess ráðs að selja jólagjöfina sína í janúar af því að það náði ekki að koma henni til Reykjavíkur og skila henni fyrir tiltekinn tíma en flíkin passar ekki eða annað slíkt. Í því er sóun og kjararýrnun líka. Einstaklingurinn sem gaf gjöfina eða keypti borgar fullt verð fyrir vöruna en síðan er þetta ómerkt eða þiggjandinn fær minni pening fyrir gjöfina við að reyna að setja hana á sölu á Austurlandi eða hvar sem er.

Það eru margir vinklar á þessu máli en ég fagna því að málið sé komið hér fram. Það er mikil þörf á því. Þetta er, eins og ég segi, gæða-, kjara- og umhverfismál gagnvart sóun og þarna er tækifæri með góðri kynningu til að reyna að ná verslunar- og þjónustugeiranum inn í það að vinna betur að sínum málum og bera meiri virðingu fyrir neytandanum í þessu máli.

Lengi hefur verið talað um það, og ég held að það sé alveg rétt sem komið hefur verið hér inn á, að neytendur almennt séu ekki mjög meðvitaðir um rétt sinn sem er sennilega vegna þess að hann er svo mismunandi, fólk treystir sér ekki til að fylgjast með og er jafnvel að missa tækifærin þar sem skilafrestur er bara samkvæmt verklagsreglunum. Það áttar sig hins vegar ekki á því af því að það heldur að hann sé styttri. Og það er eiginlega bara algjörlega fáránlegt þegar fólk kaupir inneignarnótur með skömmum fyrningarfresti því að þar eru beinir peningar sem verið er að leggja inn í rekstur ákveðins fyrirtækis og þá á kaupandinn að hafa a.m.k. fjögur ár ef þarf, þ.e. ef reksturinn heldur áfram. Vonandi er það þannig á flestum stöðum eða þá rétturinn flyst áfram til næsta aðila.

Ég fagna tillögunni og vona að hún fái góða umfjöllun og verði afgreidd frá Alþingi.