samráð um reglugerð um hvalveiðar.
Herra forseti. Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi ferðaþjónustunnar í íslensku efnahagslífi í dag. Þessi mikilvæga atvinnugrein hefur verið, getum við sagt, dráttarvél efnahagslífsins á undanförnum árum og á að öðrum ólöstuðum hvað mestan heiður af því að hér hefur gengið svo vel efnahagslega á undanförnum misserum. Þar hefur verið langmest fjölgun starfa á undanförnum árum
Það vekur vissulega athygli þegar stjórnvöld fara fram og endurnýja reglugerð um hvalveiðar til næstu fimm ára, að því er virðist án mikillar umræðu í samfélaginu þar að lútandi. Nú er vel þekkt að hagsmunir ferðaþjónustunnar eru þar mjög ríkir vegna þess að hingað koma þúsundir ferðamanna á hverju ári í hvalaskoðun en ekki síður vegna þeirra neikvæðu áhrifa sem hvalveiðar hafa á ímynd okkar, umræðu um landið á alþjóðavettvangi og þar með mögulega á komu ferðamanna hingað til lands.
Í því samhengi vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Var haft samráð við hæstv. ráðherra um þessa ákvörðun hæstv. sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra? Var málið rætt sérstaklega í ríkisstjórn áður en þessi ákvörðun var tekin og var haft eitthvert samráð við atvinnugreinina, ferðaþjónustuna, um þessa ákvörðun sem getur haft veruleg áhrif á efnahagslífið? Og þá kannski síðasta spurning til ráðherra í þessari fyrstu umferð: Telur ráðherra veiðarnar vera sjálfbærar, sér í lagi þegar haft er í huga að það gengur bölvanlega að koma þessum afurðum í verð á alþjóðamörkuðum og á sama tíma kann þetta að hafa verulega neikvæð áhrif á ferðaþjónustu og þar af leiðandi neikvæð áhrif á gjaldeyristekjur þjóðarinnar? Er þetta sjálfbær atvinnugrein og sjálfbær ákvörðun hjá ríkisstjórninni að endurnýja reglugerð um leyfi til hvalveiða?