149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

samráð um reglugerð um hvalveiðar.

[14:05]
Horfa

ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Reglugerð sem gefin var út var gerð á grunni vísindalegrar ráðgjafar Hafrannsóknastofnunar um sjálfbærni veiðanna. Þar er sá þáttur skoðaður. Í hvaða ferli málið fór var auðvitað þetta vinnulag, að láta Hagfræðistofnun Háskólans skoða þetta sérstaklega. Það vinnulag var samþykkt. Út úr því kom þessi skýrsla og í kjölfarið var reglugerð gefin út. Það er vinnulagið sem rætt var um. Í kjölfarið er þessi ákvörðun tekin. Hvaða fundi atvinnugreinin hefur átt nákvæmlega með sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra þori ég ekki að segja til um í ræðustól, en ég veit að eitthvert samtal hefur átt sér stað. Ég þori ekki að fara með hvort það hafi verið formlegir samráðsfundir eða hvort það hafi verið að frumkvæði ráðherra eða greinarinnar eða hvað.

Hér er spurt hvort veiðarnar séu sjálfbærar með tilliti til annarra þátta, efnahagslegra, og hér er fullyrt að þetta hafi skaðleg áhrif á ferðaþjónustu. Ég hef hingað til svarað því þannig að ég hef aldrei séð neitt sem sýnir fram á að þetta hafi skaðleg áhrif á ferðaþjónustu. Það er engin slík greining til, en ekki myndi ég treysta mér til að fullyrða það. Auðvitað fer ekki fram hjá mér umræða um ímynd lands og einhverjir fjöldapóstar erlendis frá um að það fari ekki saman við ímynd landsins að við skulum veiða áfram hval. Ef fólk sér hag sinn í því að stunda veiðar sem eru sjálfbærar og telur sig geta haft eitthvað upp úr því er ekki mitt að hafa einhverja sérstaka skoðun á því hvort það sé góð viðskiptahugmynd eða ekki. Út frá athugunum á ferðaþjónustu eru engar greiningar til sem sýna fram á skaðsemi þess. Þess vegna er rauði þráðurinn að við byggjum veiðar á vísindalegri ráðgjöf og það er gert í þessu tilviki.