149. löggjafarþing — 70. fundur,  26. feb. 2019.

samráð um reglugerð um hvalveiðar.

[14:07]
Horfa

Þorsteinn Víglundsson (V):

Herra forseti. Ég get ekki sagt að svar hæstv. ráðherra veki hjá mér neina sérstaka tiltrú um að hér hafi verið vandað til verks. Lykilþáttur sjálfbærni er efnahagsleg sjálfbærni og í sjálfu sér eru veiðar sem ekki er hægt að selja afurðirnar af ekki sjálfbærar veiðar í efnahagslegu samhengi. Það má vel vera að hvalveiðistofnar þoli þann afrakstur líffræðilega, en það er enginn tilgangur með slíkum veiðum ef ekki er hægt að selja vöruna, þannig að slíkar veiðar geta aldrei verið sjálfbærar.

En það vekur hins vegar athygli að ríkisstjórnin skuli ekki hafa gefið sér tíma til þess að meta möguleg áhrif hvalveiða á ferðaþjónustuna með vönduðum hætti í ljósi þeirra gríðarlegu hagsmuna sem ferðaþjónustan kann að hafa af áhrifum veiðanna á ímynd landsins og þar með komu ferðamanna hingað til lands, sér í lagi í ljósi þess að það hastar ekkert að taka ákvörðun um áframhald veiða meðan ekkert gengur að selja afurðirnar hvort eð er. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Ég trúi ekki öðru en að hæstv. ráðherra beiti sér fyrir því að slík athugun verði látin fara fram.