staða ferðaþjónustunnar.
Herra forseti. Þegar ferðaþjónustan tók vaxtarkipp sinn fyrir nokkrum árum varð ljóst að þetta var ein stærsta og flottasta uppbyggingargrein okkar á þeim tíma. Það skiptir miklu máli fyrir okkur. Í þeim vexti fólst ákveðið tækifæri. Við höfum tækifæri til að búa til nýja undirstöðugrein og það er ekki á hverjum degi sem slík tækifæri gefast. Með því tækifæri var ákveðin ábyrgð á bæði fyrirtækjum í ferðaþjónustu og ríkisvaldinu að hlúa vel að því að stoðirnar væru góðar. Það virðist sem miklum tíma hafi verið sóað og það var ekki nógu vel farið í innviðauppbyggingu, lögð var of mikil áhersla á stórar fjárfestingar í því sem mætti kalla lúxusverkefni sem hafa í rauninni spanað upp allt í kringum ferðaþjónustuna á þann hátt að hætt er við falli ef vöxturinn heldur ekki endalaust áfram á þeim hraða sem hann gerði. Þetta er orðið ákveðið vandamál vegna þess að stærð ferðaþjónustunnar er gríðarleg. Þetta er um þriðjungur efnahags okkar. Til samanburðar er ferðaþjónustan á Spáni, í landi sem við hugsum um sem mikið ferðamannaland, ekki nema um 13%. Slík stærð skapar áhættu þannig að ég tel að á þessum tímapunkti þurfum við bæði að hlúa að þeim stoðum sem var ekki sinnt nægilega vel í upphafi en á sama tíma ættum við að gera það besta sem við getum fyrir ferðaþjónustuna sem er að losa hana undan þeirri ábyrgð sem fylgir því að vera stærsti atvinnuvegurinn, þ.e. að búa til nýja atvinnuvegi og reyna að stuðla að meiri fjölbreytileika til þess að vandamálin sem eru kannski að verða til vegna minni aukningar ferðamanna verði síður þjóðhagslegt vandamál og verði hægt að leysa innan ramma ferðaþjónustunnar.